Búið er að draga brúargrind nýrrar brúar yfir Ölfusá af austurbakkanum yfir á þann vestari. Brúargrindin er 330 metra löng og vegur um 2.000 tonn. Aðgerðin tók mun skemmri tíma en upphaflega var áætlað.
Við framkvæmdina voru notaðir öflugir vökvadrifnir tjakkar sem drógu brúargólfið áfram eftir sérstökum dráttarlegum. Brúargrindin hvíldi á púðum sem runnu eftir sléttum stálplötum til að koma í veg fyrir skemmdir á yfirborði stálbitanna.
Tjakkarnir færðu brúargólfið áfram um hálfan metra í hverri atrennu. Við bestu aðstæður var gert ráð fyrir að hægt yrði að færa það um tíu metra á klukkustund.
Til að tryggja stuðning við brúargólfið á meðan á færslunni stóð var komið fyrir stóru bráðabirgðamastri ofan á því. Frá mastrinu lágu stálkaplar sem héldu uppi fremri enda brúargólfsins meðan það var dregið yfir ána.

