4.9 C
Selfoss

Aukning í prófum hjá Háskólafélagi Suðurlands

Vinsælast

Prófatímabilið er hafið hjá Háskólafélagi Suðurlands og nemendur farnir að þreyta próf frá ýmsum háskólum landsins. Fjarprófaþjónustan er mikilvægur liður í starfsemi félagsins en aukin notkun gervigreindar og breytingar á námsmati háskólanna hafa meðal annars áhrif á aukna tíðni prófa.

Háskólafélagið starfrækir háskóla- og fjarnámsþjónustu fyrir nemendur á Suðurlandi og stuðlar þannig að auknum tækifærum til háskólanáms óháð búsetu. Á síðasta ári fóru fram um 1.400 próftökur hjá félaginu. Þjónustan gerir háskóla- og framhaldsskólanemum kleift að þreyta próf í heimabyggð án þess að þurfa að ferðast langar leiðir til síns skóla.

Flestir próftakar frá Háskólanum á Akureyri

Stærstur hluti próftaka hjá Háskólafélaginu eru nemendur við Háskólann á Akureyri en á síðasta ári voru um 75% próftaka frá þeim skóla. Af nemendum sem búsettir eru á Suðurlandi og stunda nám við HA er um þriðjungur þeirra í kennaranámi og tæplega fimmtungur í hjúkrunarfræði. Rúmlega 60% nemendanna eru búsettir á Selfossi en aðrir víðs vegar um Suðurland. Háskólafélagið annast einnig próf fyrir nemendur annarra háskóla en framboð fjarnáms er mismikið eftir skólum. Það er því tækifæri annars vegar til að efla og hvetja til háskólamenntunar á öðrum sviðum og svæðum innan landshlutans og hins vegar að hvetja háskólana um fjölbreyttara námsframboð.

Gervigreind hefur áhrif á námsmat

Próftökum hefur fjölgað með aukinni tíðni smærri prófa á námstímanum. Samhliða aukinni notkun gervigreindar hafa háskólar í auknum mæli lagt áherslu á að tiltekin próf fari fram á prófstað í viðkomandi skóla eða á viðurkenndum prófstöðum með yfirsetu. Þessi þróun hefur áhrif á umfang og skipulag þjónustunnar.

Námsaðstaða og tengsl við atvinnulífið

Háskólafélagið býður jafnframt upp á lesaðstöðu fyrir nemendur í Fjölheimum á Selfossi. Þar eru lesbásar, kaffiaðstaða og rými til náms og samveru.

Auk nemendaþjónustunnar vinnur Háskólafélagið að því að efla tengsl háskóla, atvinnulífs og sveitarfélaga á Suðurlandi. Meðal annars hefur verið leitað eftir hugmyndum að rannsóknarverkefnum sem háskólanemar gætu unnið í tengslum við lokaverkefni sín. Markmiðið er að nýta betur þekkingu og rannsóknir til að takast á við raunveruleg viðfangsefni í atvinnulífi og samfélagi á Suðurlandi.

Ingveldur Sæmundsdóttir
Framkvæmdastjóri Háskólafélags Suðurlands

Nýjar fréttir