1.7 C
Selfoss

HSK hlaut Hvatningarverðlaun UMFÍ í þriðja sinn

Vinsælast

Fern verkefni íþrótta- og ungmennafélaga hlutu Hvatningarverðlaun UMFÍ á 46. Sambandsráðsfundi UMFÍ sem fram fór á Ísafirði um helgina.

Héraðssambandið Skarphéðinn hlaut Hvatningarverðlaunin fyrir verkefni Ungmennafélags Selfoss og Íþróttafélagsins Suðra. Verðlaunin voru veitt fyrir verkefnið að færa starf Íþróttafélagsins Suðra í eina af deildum Ungmennafélags Selfoss til að efla starf fyrir iðkendur með fötlun. Guðríður Aadnegard tók við Hvatningarverðlaunum fyrir hönd HSK. Hún þakkaði Rakel Magnúsdóttur og bauð henni upp að taka á móti viðurkenningunni með sér, en Rakel kom að vinnu við sameininguna, sem svæðisfulltrúi á Suðurlandi.

Önnur héruð sem hlutu verðlaun voru ÍBR, HSÞ, ÍA og UMSB. Íþróttabandalag Reykjavíkur hlaut Hvatningarverðlaunin fyrir víðtækt átak Knattspyrnufélags Reykjavíkur fyrir áherslur í félagsmálum og forvörnum félagsins, meðal annars með auknum sýnileika sjálfboðaliða og verkefni gegn nikótíni innan félagsins. Eitt verkefnanna var samstarfsverkefni tveggja íþróttahéraða, Íþróttabandalags Akraness og Ungmennasambands Borgarfjarðar. Verðlaunin eru veitt fyrir samstarf og sameiginlegar lausnir Sundfélags Akraness og Sunddeildar Ungmennafélagsins Skallagríms í Borgarnesi, sem miða að því að endurvekja sunddeild Skallagríms með þjálfurum sem koma frá Akranesi. Að lokum hlaut Héraðssamband Þingeyinga Hvatningarverðlaun UMFÍ fyrir samþættingarverkefni Íþróttafélagsins Völsungs á Húsavík sem tengir saman íþróttastarf, skóla og frístundir barna á aldrinum 4–8 ára.

Þess má geta að þetta var í þriðja sinn sem HSK hlýtur Hvatningarverðlaun UMFÍ. Árið 2007 hlaut HSK verðlaunin fyrir framúrskarandi starf að kynningarmálum og 2016 hlaut HSK Hvatningarverðlaunin fyrir öflugt og metnaðarfullt starf Frjálsíþróttaráðs HSK.

Nýjar fréttir