5 C
Selfoss

Fyrsta skóflustunga tekin að nýju fangelsi á Stóra-Hrauni

Vinsælast

Fyrr í dag var fyrsta skóflustungan að nýju öryggisfangelsi á Stóra-Hrauni við Eyrarbakka var tekin. Fangelsið verður fyrsta öryggisfangelsið hér á landi og mun hafa rými fyrir allt að 128 fanga þegar uppbyggingu þess verður lokið.

„Þetta er stærsta framkvæmd í fangelsismálum í Íslandssögunni allri,“ ávarpar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra við skóflustungu.

Framkvæmdirnar eru mikilvægt skref í uppbyggingu fangelsiskerfisins en með nýju fangelsi verður hægt að bæta öryggi, aðgreina fanga eftir þörfum og skapa betri aðstöðu til náms, vinnu, meðferðar og endurhæfingar.

Uppbyggingunni verður skipt í tvo áfanga. Í þeim fyrri verður byggt fyrir 56 fanga auk skólabyggingar, vinnustofu, vöruhúss og aðalbyggingar. Áætlaður kostnaður við fyrsta áfanga er 17,8 milljarðar króna og eru framkvæmdirnar fullfjármagnaðar.

Borgarverk samdi við Framkvæmdasýsluna – Ríkiseignir (FSRE) um jarðvinnu vegna verkefnisins, en lægsta tilboð í verkið var tæplega 993 milljónir króna.

Gert er ráð fyrir að fyrsti áfangi fangelsisins verði tilbúinn árið 2031 en þá verður hægt að reka nýtt fangelsi fyrir 56 fanga þannig að öll aðstaða til vinnu og endurhæfingar verði þegar til staðar.

Nýjar fréttir