2.3 C
Selfoss

Bláskógaskatturinn – Að sjá ekki skóginn fyrir trjánum

Vinsælast

Að sjá ekki skóginn fyrir trjánum

Þetta orðtak er gamalt en sígilt. Það er fullkomlega gegnsætt og lýsir grautarhugsun og vanmætti til að greina aukaatriði frá aðalatriðum – sem í framhaldinu gerir fólki ókleift að greina rétt frá röngu. Það á sérlega vel við nú um stundir, þegar sjálf ríkisstjórn Íslands hyggst beita valdi sínu til þess að mismuna eftir hentugleikum og óljósum leikreglum fremur en að gæta þess sjálfsagða réttsæis og jafnræðis sem margir væntu af henni.

Það hefur komið á daginn að þessi gamli og góði orðskviður á ekki síður við þegar skoðuð eru viðbrögð við rituðu máli og í ljós kemur að menn hafa ekki lesið sér til gagns. Enn ætlar þó sá er hér heldur á penna að láta á það reyna hvort skilst fyrr en skellur í tönnum.

Nú gildir það!

Gamall kennari minn frá unglingsárum – sem sendi mig reyndar til skólastjórans fyrir kjafthátt – hafði fyrir orðtak, þegar mikið lá við og brýna skyldi fyrir ungmennum að standa nú vel í stykkinu þegar kom til prófs eða ritæfinga: Nú gildir það!

Þetta leyfi ég mér nú að segja við þingmenn Suðurkjördæmis, hvar í flokki sem þeir standa. Allar nýjar álögur ríkisstjórnarinnar eru umdeildar og koma misjafnlega niður á fólki. Flestar eru þær þó að stofni til almenns eðlis og eru að minnsta kosti hugsaðar þannig að þær komi tiltölulega jafnt við, hvar á landinu sem menn búa. Oftlega hallar þó á landsbyggðina ef grannt eru skoðuð dæmin – en látum það liggja milli hluta í bili. Dæmi um þess háttar álögur eru hækkun á kílómetragjaldi, virðisaukaskattshækkanir á baðlón og jarðefnaeldsneyti, hækkun á gistináttaskatti – og fleira mætti telja. Allt þetta má til sanns vegar færa að hafi almennt gildi og geti staðist sjálfsagða jafnræðisreglu, þótt vissulega sé um hápólitísk álitamál er að ræða. Þar verður hver að liggja sem hann hefur um sig búið, og gildir jafnt um alþingismenn og kjósendur þeirra.

Hoggið í sama knérunn!

Í öllu þessu Gnarr-fári er furðu hljótt um nýjustu „afrek” ríkisstjórnarinnar í málefnum Suðurkjördæmis. Sum af þessum afrekum eru beinlínis aðför að völdum ferðamannastöðum – Þingvöllum, Geysi og Gullfossi. Af öllum þessum stöðum á að hafa fúlgur fjár, í stað hins sjálfsagða: Að þeir taki þátt fyrir sitt leyti og stuðli þannig að heilbrigðu og samstilltu átaki um að ferðaþjónustan skili meiru í ríkissjóð til innviðauppbyggingar fyrir íslensku þjóðina. Öll þessi náttúruundur tilheyra einu tilteknu sveitarfélagi og starfsemin þar að miklu leyti byggð upp af einstaklingum, heimamönnum. Þessi aðför beinist að sjálfu byggðarlaginu í leiðinni – Bláskógabyggð – og hefur ruðningsáhrif á alla ferðaþjónustu og raunar alla innviði og atvinnustarfsemi í nágrannasveitarfélögum í uppsveitum Árnessýslu: Í Grímsnes- og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, auk fyrrnefndrar Bláskógabyggðar. Vera má að um lágsveitir og Ásahrepp gildi það sama, ég læt það liggja milli hluta í bili, en minni á áralangt samstarf og samstöðu þessara sveita allra um mikilsverða hluti. Höfuðnauðsyn er að hreppsnefndir þessara tilteknu sveitarfélaga standi nú saman sem einn maður um að þessum áformum verði hrint – þrátt fyrir þann trúnaðarbrest sem orðið hefur í samskiptunum á undanförnum misserum, svo ég nefni nú snöru í hengds manns húsi.

Allir taki þátt!

Til að taka af öll tvímæli er hér aldrei minnst á að aukin skattheimta á ferðaþjónustu eigi ekki að vera til skoðunar, með þeirri samræðusiðfræði sem sjálfsögð er og reynt hefur verið að opna augu fólks fyrir. Aldrei er hér vikið að því einu orði að nokkurt sveitarfélag eða landshluti fái sérmeðferð – heldur hitt, að alla áherslu beri að leggja á hið gagnstæða: Að farið sé eftir jafnræðisreglu með almennum aðgerðum sem allir verða að þola jafnt. Þannig myndu Þingvellir falla í flokk þjóðgarða sem allir kynnu að lúta sömu reglu um aðgangskjör – Geysir og Gullfoss færu í flokk með öllum þeim stöðum sem búa að náttúrugæðum og náttúrufegurð og nýttir eru til að draga að ferðamenn um land allt. Hér væri strax hægt að fara í langa upptalningu á fáséðum náttúruundrum sem falla myndu í slíkan flokk. Slíkar gullkistur og auðsholt eru vítt og breitt um sveitir, og á einum slíkum stað býr undirritaður höfundur þessara lína. Ég er þó helst á því að erfitt kynni að vera að draga mörkin – og það færir okkur kannski bara heim sanninn um að slík mismunum er fyrirfram vonlaus og allir verði að sitja við sama borð – líka þeir sem hafa byggt upp aðstöðu og haft afkomu af henni, þrátt fyrir fábreyttara landslag og náttúrufar.

Samtaka nú!

Það mætti ætla að þingmenn í Suðurkjördæmi yrðu einna fyrstir að tjá sig um fyrirætlanirnar sem hér eru til umræðu. Þeir hikuðu við. Nokkrir stjórnarandstöðuþingmenn hafa loks tjáð sig og er það vonandi bara blábyrjunin á kröftugri andstöðu við þessi vanhugsuðu og illa undirbúnu áform, því betur má ef duga skal. Stjórnarþingmenn í Suðurkjördæmi þegja þunnu hljóði og munu þannig gera sig að ómerkingum í augum kjósenda sinna, ef þeir gera ekki bragarbót. Trúlega verður þeim munað það þegar dregur að því að kosið verði að nýju. En víst er að brýningin á jafnt við um alla þingmenn Suðurkjördæmis og allt sveitarstjórnarfólk í uppsveitum Árnessýslu og víðar á Suðurlandi: Nú gildir það!

Bjarni Þorkelsson, Traustatúni 2, Laugarvatni

Nýjar fréttir