9.5 C
Selfoss

Toppa Selfyssingar Akureyringa?

Vinsælast

Sunnlenska hljómsveitin Hr. Eydís og söngkonan Erna Hrönn Ólafsdóttir hófu hausttúrin ALVÖRU ’80s PARTÝ „Movie Hits“ með miklum látum á Græna hattinum á Akureyri síðastliðinn laugardag. Nú er komið að heimavellinum, en næstu tónleikar verða á Sviðinu á Selfossi laugardaginn 17. október.

„Það var alveg tryllt stemning á Græna hattinum um helgina og áhorfendur tóku svo sannarlega þátt í fjörinu! Nú hlökkum við mikið til laugardagsins á Sviðinu. Það er alltaf sérstök tilfinning að spila á okkar heimavelli og við vitum að Selfyssingar kunna svo sannarlega að skemmta sér!“ segir Örlygur Smári, söngvari og gítarleikari Hr. Eydísar.

„Það er svo ótrúlega gaman þegar salurinn tekur undir með okkur og allir syngja með. Stemningin á Akureyri var alveg mögnuð og nú er bara spurning hvort Selfyssingar ætli að toppa Akureyringa!“ segir Erna Hrönn Ólafsdóttir og hlær.

Á tónleikunum er kvikmyndatónlist níunda áratugarins (´80s) í aðalhlutverki. Áhorfendur fá að heyra ógleymanlega smelli úr kvikmyndum á borð við Top Gun, Back to the Future, Rocky III, Dirty Dancing, Flashdance, Ghostbusters og Footloose, ásamt fjölda annarra þekktra kvikmyndalaga.

Tónleikarnir á Sviðinu hefjast kl. 21 og miðar eru seldir á tix.is.

Nýjar fréttir