6.7 C
Selfoss

Lúxusseðla

Vinsælast

Matgæðingur vikunnar er Tryggvi Sigurberg Traustason.

Takk fyrir áskorunina! Ég ætla að deila með ykkur uppskrift að rétti sem getur varla klikkað. Hann hentar jafnt sem góður kvöldmatur og í skemmtilegt teiti með vinum og fjölskyldu. Uppskriftin er mín eigin og ég hef verið að þróa hana undanfarin ár. Rétturinn er einfaldur í undirbúningi, bragðríkur og alltaf jafn góður!

Lúxusseðla

Hráefni

  • Um 500 g hakk
  • ½ krukka af salsasósu
  • ½ dós af rjómaosti
  • Mozzarellaostur, eftir smekk
  • Pítsuostur, eftir smekk
  • Mexíkóostur, rifinn yfir eftir smekk
  • Salt, eftir smekk
  • Chilikrydd, eftir smekk
  • Doritos í svörtum eða bláum poka, til að bera fram með

Aðferð

Byrjið á að kveikja á ofninum (180-200 gráður). Steikið hakkið á pönnu þar til það er eldað í gegn. Færið það síðan yfir í skál og blandið salsasósu og rjómaosti saman við.

Dreifið blöndunni í botninn á eldföstu móti. Setjið mozzarellaost og pítsuost yfir og rífið að lokum Mexíkóost ofan á.

Síðasta skrefið áður en rétturinn fer í ofninn, og að mínu mati það mikilvægasta, er að krydda vel með salti og chilikryddi.

Setjið mótið í ofninn og bakið þar til osturinn er bráðinn og orðinn gullinbrúnn.

Berið fram með Doritos í svörtum eða bláum poka. Gott er að nota skeið til að setja eðluna á snakkið svo allt það góða komist með í hverjum bita!


Að lokum skora ég á Skarphéðin Stein Sveinsson. Hann er yndislegur kokkur og það væri gaman að fá uppskrift frá honum!

Nýjar fréttir