8.4 C
Selfoss

8 iðkendur Fimleikadeildar Selfoss á leið á Evrópumót í hópfimleikum

Vinsælast

Fimleikadeild Selfoss á átta fulltrúa í landsliðum Íslands sem keppa á Evrópumótinu í hópfimleikum í Finnlandi nú í vikunni. Mótið hefst á morgun, 14. október og lýkur laugardaginn 17. október, en úrslit mótsins eru á föstudag og laugardag.

Í stúlknaliðinu keppa Kristín María Kristjánsdóttir og Elva Lillian Sverrisdóttir. Í drengjaliðinu eru Eiður Hilmar Sigmundsson, Birgir Árni Sigmundsson og Hinrik Jarl Aronsson. Victoria Ann Vokes, Silvia Rós Nokkala Valdimarsdóttir og Elsa Karen Sigmundsdóttir keppa með kvennalandsliðinu.

Stúlkalandslið Íslands. Kristín María er 3. frá vinstri í efri röð. Elva Lillian er 2. frá vinstri í neðri röð. Mynd: Fimleikasambandið.
Drengjalið Íslands. Eiður og Birgir eru 3. og 4. frá vinstri í neðri röð. Hinrik Jarl er lengst til hægri í efri röð. Mynd: Fimleikasambandið.

Selfoss á einnig fulltrúa í þjálfarateymi landsliðanna. Heiðrún Ósk Sævarsdóttir, þjálfari hjá Fimleikadeild Selfoss, er þjálfari drengjalandsliðsins á Evrópumótinu.

Hægt er að horfa á keppnina í beinni hér https://www.gymtv.online/en. Úrslitin í fullorðinsflokki sem fram á laugardaginn munu einnig vera sýnd á Rúv.

Nýjar fréttir