Andrés Kristjánsson kláraði krabbameinsmeðferð hjá okkur á Krabbameinsdeildinni á Selfossi fyrr í mánuðinum. Til marks um áfangann hringdi hann nýju gullbjöllunni hressilega að viðstöddu starfsfólki sem hefur fylgt honum í gegnum meðferðina síðastliðin tvö ár.
Hringingin markar tímamót á HSU því Andrés er fyrstur til að hringja bjöllunni, en henni er hringt eftir að krabbameinsmeðferð hefur formlega lokið.
Við óskum Andrési innilega til hamingju með áfangann!


