10.3 C
Selfoss

Hægeldaðir lambaskankar

Vinsælast

Matgæðingur vikunnar er Jón Karl Sigurðsson.

Takk fyrir áskorunina, Hlynur! Ég er nú kannski ekki þekktur fyrir það að vera mikið í eldhúsinu þó maður hafi reyndar leyst af í mötuneyti Landsvirkjunar á Sogssvæðinu í smátíma. Þar sem maður býr ennþá í foreldrahúsum og með kokk (pabba) á heimilinu fær maður reglulega góðan mat. Hér ætla ég að reyna að sýna ykkur einn af mínum uppáhaldsréttum sem pabbi er búinn að reyna að kenna mér að gera en það eru

Hægeldaðir lambaskankar

Uppskrift:

4 meðalstórir lambaskankar
1 rauðlaukur
6-8 gulrætur
6 sveppir
6-8 hvítlauksgeirar
1 dós maukaðir tómatar
2 msk. tómatpurre
4 dl rauðvín
800 ml vatn
4 greinar rosmarin
4 greinar timjan
4-6 msk. fljótandi nautakraftur
Salt og pipar

Aðferð:

Brúnið skankana á pönnu og kryddið með salti og pipar. Komið skönkunum fyrir í djúpum potti sem þið ætlið að nota fyrir suðuna. Skerið gulrætur, rauðlauk, sveppi og hvítlaukinn í meðalstóra munnbita. Brúnið grænmetið á pönnu og bætið ofan á skankana ásamt maukuðu tómötunum og tómatpurre. Því næst hellið rauðvíni og vatni út í pottinn og leggið kryddjurtirnar ofan á (ágætt að fjarlægja kryddjurtirnar eftir ca klukkutíma suðu). Skankarnir mega síðan sjóða rólega í ca tvo tíma. Smakkið til með nautakraftinum, salti og pipar og eftir atvikum auka slettu af rauðvíni. Þegar skankarnir eru tilbúnir er fínt að veiða þá upp úr ásamt grænmeti og þykkja mögulega sósuna aðeins með brúnum maizena. Krakkar, munið að uppskrift er bara viðmið, þið getið dregið úr og bætt við hráefnum eins og ykkur hentar. Skankar eru alla jafna bornir fram með sykurlausri kartöflumús.

Vonandi getið þið notað þessa uppskrift og notið þess að borða lambaskanka. Þessi uppskrift hentar vel fyrir 4 manneskjur.


Ég ætla að fá að skora á vin minn hann Einar Ísak Friðbertsson. Mig grunar að hann lumi á einhverju mjög spennandi og skemmtilegu sem hann getur boðið upp á.

Nýjar fréttir