12.7 C
Selfoss

Paulus Schäfer leikur á Selfossi

Vinsælast

Hollenski gítarleikarinn Paulus Schäfer, sem er í hópi fremstu gypsy jazz gítarleikara í heiminum í dag, kemur fram á tónleikum á Selfossi 1. október kl. 20:00 á Sviðinu. Honum til halds og trausts verður Tríó Gunnars Hilmarssonar, auk tveggja sunnlenskra gesta.

Schäfer er kominn af Sinti-ætt en sú ætt er þekkt fyrir tónlist og hafði mikil áhrif á þróun dægurlagatónlistar í Evrópu. Lögin voru sjaldnast skrifuð niður heldur lærðust á milli kynslóða og gera enn í dag. Spuni spilar lykilhlutverk í tónlistinni og er tónlistin í daglegu tali kölluð Gypsyjazz.

Gunnar Hilmarsson hefur verið leiðandi í gypsy jazz hér á landi undanfarin ár. Hann lauk burtfararprófi frá Tónlistarskóla FÍH árið 2009. Með Gunnari í tríóinu eru Selfyssingurinn Leifur Gunnarsson á kontrabassa og Jóhann Guðmundsson á gítar.

Sérstakir gestir á tónleikunum verða fiðluleikararnir Dan Cassidy og Hugrún Birna Hjaltadóttir. Bandaríski fiðluleikarinn Dan Cassidy hefur búið á Íslandi frá upphafi tíunda áratugarins. Dan er nú búsettur á Selfossi og auðgar nú menningarlíf Sunnlendinga með sínum fallega fiðluleik. Hugrún hefur vakið athygli fyrir skemmtilega framkomu en hún nemur fiðluleik í Tónskóla Árnesinga.

Nýjar fréttir