5 C
Selfoss

Ofnbökuð bleikja með mangósalsa og hvítlauksbrauði

Vinsælast

Matgæðingur vikunnar er Eva Arnarsdóttir.

Takk, elsku Macey, fyrir tilnefninguna.

Fékk samt nett kvíðakast yfir þessu. Þá helst vegna þess að ég á svo margar uppáhaldsuppskriftir en fer líka svo sjaldan eftir uppskriftum.

Ég ætla að bjóða upp á ofnbakaða bleikju (má líka vera lax en þá helst villtur) með mangósalsa og hvítlauksbrauði.

Ofnbökuð bleikja – Uppskriftin er fyrir ca. 4

800-900 g bleikja, roðflett
25 g smjör
1/2 dl sweet chili sósa
1-2 tsk. rifið ferskt engifer
1 stórt hvítlauksrif, pressað
Góður slatti af fersku kóríander, saxað smátt
1/2-1 tsk. rauðar piparflögur
Salt eftir smekk

Allt sett í pott og hrært saman þar til smjörið er bráðið, tekið af hitanum og 2 tsk. sesamolía sett út í.

Þessu er smurt ofan á fiskinn.

Ferskum ananas er raðað í botninn á eldföstu formi, bleikjunni raðað ofan á og bakað í 220 gr heitum ofni í 15-20 mínútur, fer eftir þykkt stykkjanna.

Tekið út og ristuðum sesamfræjum og smátt skornum graslauk dreift yfir

Mangó salsa

1 stórt mangó, skorið í teninga
1 stór rauð paprika, skorin í teninga
1/2 rauðlaukur, smátt skorinn
Góður slatti af kóríander, smátt skorinn.
1 chili, fræhreinsað og smátt skorið
Safi úr 1-2 lime, fer eftir hversu safarík þau eru.

Öllum blandað saman og smá flögusalt yfir

Hvítlauksbrauð 

1 súrdeigsbaguette skorið í tvennt eftir endilöngu og svo í 4 bita hvor helmingur

Sett vel af smjöri (nota oft kalt smjör beint úr ísskápnum og skerið það með ostaskera) á alla bitana og kryddið með hvítlauksdufti og flögusalti.

Ef vill má setja rifinn ost yfir.

Bakað í 220 gr heitum ofni í 5 mín.

Verði ykkur að góðu!


Ég ætla að skora á stórvin minn, garðyrkjubóndann og kryddframleiðandann Gunnar Þorgeirsson á Ártanga, að koma með uppskrift í næsta blaði. Hann er eins og ég, fer ekki eftir uppskriftum en er snilldarkokkur.

Nýjar fréttir