Hans átti afar sterkt keppnisár 2026 og náði góðum árangri á stærstu mótum ársins. Hann hóf árið af krafti í Meistaradeild Líflands þar sem hann varð í öðru sæti í fimmgangi á Öl frá Reykjavöllum. Á Íslandsmóti bætti hann svo við silfur verðlaunum í 150 metra skeiði á Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði á tímanum 14,03 sekúndum sem jafnframt er fjórði besti tími ársins.
Hápunktur ársins var þó án efa sigur Hans Þórs og Sindra frá Hjarðartúni í A-flokki gæðinga á Landsmóti hestamanna á Hólum. Þar stóðu þeir uppi sem Landsmótsmeistarar eftir glæsilega frammistöðu og hlutu 9,13 í einkunn. Sigur í A-flokki á Landsmóti er einn eftirsóttasti og virtasti titill sem knapi getur unnið hér á landi og stendur upp úr á glæsilegu keppnisári Hans Þór Hans Þór Hilmarsson er flott fyrirmynd innan vallar sem utan.


