13.3 C
Selfoss

Svo skal böl bæta að bíða annað meira

Vinsælast

Nú er verið að bæta og laga strætókerfið hér í Árborg og varð einum svo að orði í heita pottinum að nú skyldi bæta þjónustuna með því að fækka ferðum og yrði bestur árangur með því að leggja þjónustuna niður.

Það var að sjá og mátti heyra í aðdraganda síðustu sveitarstjórnarkosninga að Sjálfstæðismenn virtust ekki skilja hugtakið „almenningssamgöngur“, því það var staglast á orðunum skólastrætó, tómstundastrætó og sundvagnar.

Til að útskýra fyrir sjálfstæðismönnum og öðru fólki innan Árborgar að hugtakið almenningssamgöngur lýtur að nokkrum auðgreindum þáttum:

1) koma fólki úr og í vinnu = frá heimili og til vinnu, og svo til baka.

2) koma fólki til og frá verslun, þjónustu og afþreyingu (s.s. íþróttum)

3) að skólafólk komist á milli heimilis, skóla og afþreyingar.

Miðað við það sem heyrst hefur um komandi strætisvagnakerfi verður lífsins ómögulegt fyrir almenning eins og mig að nota strætó frá Eyrarbakka til Selfoss án þess að hanga þar í nokkra klukkutíma eftir ferð til baka eða fara á puttanum á milli staða, sem ég geri orðið nokkuð oft eftir að 20:30 ferðin niður eftir frá Krónunni var tekin af. 

Svo ég legg fram framtíðartillögu um akstur Árborgarstrætó:

Einn vagn fari á klukkustundar fresti frá N1 og stoppi þrisvar [Krónan, Tónlistarskólinn og Nettó] áður en farið er niður í Tjarnarbyggð og svo áfram á Eyrarbakka og Stokkseyri og víxlar ferðunum á milli strandabæjanna (önnur hver byrjar á Eyrarbakka) frá mánudegi til laugardags frá kl. 06:00 til 23:00 en mun minna á sunnudögum. Þessi vagn fer svo frá þorpunum og stoppar aftur við Nettó, Tónlistarskólann og ráðhúsið og svo beint inn á N1. Sem stendur getur enginn notað þær almenningssamgöngur sem fyrir hendi eru til að komast í og/eða úr vinnu. (Miðbærinn opnar kl. 10:00 og lokar kl. 22:00).

Á N1 yrðu svo fjórir minni vagnar sem fara réttsælis og rangsælis um Selfoss, svo ekki líði meira en 20 mínútur á milli vagna í hringnum, þó ekki endilega sama hringinn. Þessir vagnar stoppi við verslanir, iðnaðarsvæði, skóla og afþreyingarstaði og þessa innanbæjarvagna ætti skólafólk að geta notað eða hreinlega gengið, því það skóla- og tómstundakerfi sem verið hefur við lýði er eyðsla á almannafé og vannýting á bifreiðarstjórum.

Það skal bent á að senn kemur ný brú austan megin við Mjólkurbúið og það eru áform um að flytja tjaldsvæðið norðanmegin við ána, þ.e. nálægt skógræktinni. Þess má einnig geta að undirritaður hefur séð áætlanir um frekari uppbyggingu norðan ár og þarf því að tengja það svæði við strætókerfið.

En ég tel engar líkur á að það verði teknar skynsamlegar ákvarðanir um almenningssamgöngur í Árborg svo líkast þá neyðist maður til að kaupa bíl eða flytja.

Tómas V. Albertsson
MA-Cert activism & social change
University of Leeds

Nýjar fréttir