9.9 C
Selfoss

Súkkulaðibitakökur ömmu

Vinsælast

Matgæðingur vikunnar er Macey Lynn.

Takk, kæra Martina, fyrir að tilnefna mig. Ég heiti Macey og er frá Indiana í Bandaríkjunum. Hér er uppskrift að klassískum amerískum súkkulaðibitakökum, alveg eins og amma mín bakaði alltaf fyrir mig.

Nana’s Brown Butter Chocolate Chip Cookies:

  • 280 g ósaltað smjör, kalt úr ísskápnum er í lagi
  • 200 g ljós eða dökkur púðursykur
  • 120 g sykur
  • 2 stór egg
  • 1 tsk. vanillustöngumauk eða vanilludropar
  • 300 g hveiti
  • ½ tsk. lyftiduft
  • ½ tsk. matarsódi
  • 6 g (2 tsk) salt
  • 440 g dökkt súkkulaði, saxað

Hitið ofninn í 180 °C. Klæðið tvær ofnplötur með bökunarpappír.

Setjið smjörið í meðalstóran pott og hitið við meðalháan hita. Hitið þar til smjörið hefur bráðnað og haldið síðan áfram að hita það. Hristið pottinn reglulega og hrærið með písk, þar til smjörið freyðir og verður gullinbrúnt og fær hnetukennt bragð. Þetta ætti að taka um 4–5 mínútur.

Vigtið 220 g af brúnaða smjörinu í meðalstóra skál og látið það kólna í 20–25 mínútur svo það eldi ekki eggin þegar þeim er blandað saman.

Bætið púðursykrinum og sykrinum saman við brúnaða smjörið í skálinni og hrærið vel saman.

Bætið egginu út í og pískið vel í 1–2 mínútur, eða blandið með rafmagnshrærivél, þar til blandan hefur ljósnað og þykknað.

Bætið vanillunni út í og blandið vel saman.

Bætið hveiti, lyftidufti, matarsóda og salti út í. Blandið saman með sleikju þar til enn sjást nokkrar rákir af hveiti – þetta er til að koma í veg fyrir að deigið sé ofhrært.

Bætið súkkulaðinu út í og blandið því saman við deigið með sleikju.

Mótið kúlur úr deiginu, um 30 g í hverja köku, og setjið á tilbúnu ofnplöturnar. Dreifið kökunum jafnt yfir plöturnar og hafið gott bil á milli þeirra.

Bakið kökurnar í 11–13 mínútur eða þar til kantarnir eru orðnir stífir.


Ég tilnefni tengdamóður mína, Evu Arnardóttur. Hún er ekki bara yndisleg tengdamóðir og besta amma, heldur er hún líka frábær kokkur. Mér dytti aldrei í hug að hafna því að fá mat hjá henni.

Nýjar fréttir