Í gær barst boð frá HSÍ til Selfoss þar sem meistaraflokki kvenna var boðið sæti í Olísdeild kvenna. Eftir samráð við leikmannahópinn og þjálfara hefur Handknattleiksdeildin ákveðið að taka sætið. Spennandi vetur er framundan hjá liðinu og hvetjum við stuðningsmenn og samstarfsaðila til að flykkja sér að baki liðinu.
Áfram Selfoss!


