Listamaður júlí mánaðar í Gallery Listaseli er Fríða Rögnvaldsdóttir og sýnir hún verk unnin með múrblöndu á striga. Viðfangsefni hennar er um fólk í kærleik, ást, og vináttu. Hún hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði hérlendis og víða erlendis.

