12.8 C
Selfoss

Sumar og sólskinstónar í Rangárþingi eystra

Vinsælast

Nú í júlí mun Eyrún Huld Ingvarsdóttir bjóða íbúum og gestum í Rangárþingi eystra boðið upp á fallega fiðlutóna á fjórum viðburðum víðsvegar í sveitarfélaginu. Yfirskrift tónleikastundanna er Sumar og sólskinstónar og spannar efniskráin vítt svið, allt frá klassískum einleiksverkum til íslenskra sönglaga og jass-standarda. Meðleikari er Magnea Gunnarsdóttir.

Eyrún Huld er ungur og bráðefnilegur fiðluleikari sem í vor útskrifaðist af klassískri stúdentsbraut Menntaskóla í tónlist og hyggur á framhaldsnám í fiðluleik við Konunglega tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn nú í haust.

Skógakirkja mun hýsa fyrstu tónleikastundina sem verður fimmtudaginn 9. júlí kl. 15. Að kvöldi sama dags verður tónleikastund í Breiðabólstaðarkirkju kl. 20. Þá munu þær stöllur koma aftur á svæðið föstudaginn 24. júlí og gleðja vistmenn á Kirkjuhvoli kl. 15 þann dag og svo að lokum á Kaffi Langbrók kl. 20 það sama kvöld. Aðgangur er ókeypis og öllum hjartanlega velkominn.

Nýjar fréttir