6.9 C
Selfoss

Hrafnar, Anna og Hulda leiða eftir fyrstu tvær greinar í Æsku Suðurlands

Vinsælast

Fyrsta mót í mótaröðinni Æska Suðurlands fór fram sunnudaginn 29. mars sl. í Rangárhöllinni á Hellu og keppt var í þrígang barna, fjórgang unglinga og ungmenna og smala í öllum flokkum. Frábær stemning var á mótinu og voru um 50 skráningar.

Æska Suðurlands er mótaröð sem fer fram í samstarfi Hestamannafélagana Geysis, Jökuls, Sleipnis, Ljúfs og Háfeta. Mótaröðin er stigakeppni þar sem einstaklingar safna stigum og gildir besti árangur í þremur greinum til stiga en greinarnar eru sex.

Efstu knapar í stigakeppni að loknum tveimur greinum.

Barnaflokkur

1. sæti Hrafnar Freyr Leósson (Fákur) 20 stig
2. sæti Katla Dís Hannesdóttir (Geysir) 15 stig
3. sæti Viktoría Huld Hannesdóttir (Geysir) 13 stig
4-5. sæti Hrafnhildur Þráinsdóttir (Ljúfur) 12 stig
4.-5. sæti Sigrún Freyja Einarsdóttir (Sleipnir) 12 stig
6. sæti Elsa Guðbjörg Árnadóttir (Sleipnir) 9 stig
7. sæti Eva Dögg Maagard Ólafsdóttir (Geysir) 7 stig

Unglingaflokkur

1.  sæti Anna Sigríður Erlendsdóttir (Geysir) 24 stig
2. sæti Talía Häsler (Ljúfur) 17 stig
3. sæti Helgi Björn Guðjónsson (Geysir) 16 stig
4. sæti Sigurrós Mábil Hjaltested (Sleipnir) 12 stig
5. sæti Ólavía Ósk Gunnarsdóttir ( Sleipnir 8 stig
6. sæti Karólína Ævarr Skúladótir (Sleipnir) 7 stig
7. sæti Júlía Mjöll Högnadóttir (Sleipnir) 5 stig

Ungmennaflokkur

1.  sæti Hulda Vaka Gísladóttir (Háfeti) 20 stig
2.-3. sæti Heiðdís Fjóla T. Jónsdóttir (Sleipnir) 12 stig
2.-3. sæti Vigdís Anna Hjaltadóttir (Sleipnir) 12 stig
4. sæti Sigrún Björk Björnsdóttir (Ljúfur) 8 stig
5. sæti Kristín Hekla G. Traustadóttir (Sleipnir) 7 stig

Nánari niðurstöður er að nálgast í Horsday appinu (Þrígangur (T3) og Fjórgangur) og á Facebook síðu Æsku Suðurlands.

Ljúfur og Háfeti munu halda næsta mót og fer það fram í frábærri aðstöðu Eldhesta í Ölfusi. Þar verður keppt í fjórgang barna, fimmgang unglinga og ungmenna og hindrunarstökki í öllum flokkum ásamt því að fram fer pollaflokkur. Mótið fer fram 19. apríl.

Skráning og nánari upplýsingar verða aðgengilegar á Facebook síðu Æsku Suðurlands (Æska Suðurlands) þegar nær dregur!

Nýjar fréttir