Á morgun, miðvikudaginn 8. apríl verður blásið til glæsilegra styrktartónleika í Midgard á Hvolsvelli. Markmið tónleikanna er að safna fyrir nýjum hljóðfærum fyrir tónmenntastofu Hvolsskóla.
Tónlistarstarf innan og utan skólans er bæði mikið og fjölbreytt, en mörg þeirra hljóðfæra sem nú eru í notkun eru farin að láta á sjá. Uppfærsla á tækjabúnaði er því orðin tímabær til að tryggja að nemendur hafi áfram aðgang að góðum hljóðfærum til að rækta tónlistarhæfileika sína.
Það eru nemendur á elsta stigi Hvolsskóla sem munu stíga á stokk og halda uppi fjörinu, en þeim til aðstoðar verður Ingibjörg Erlingsdóttir tónmenntakennari.
Hvatning til fyrirtækja og almennings
Aðstandendur tónleikanna hvetja sveitunga til að fjölmenna og styðja við bakið á blómlegu tónlistarstarfi barna og unglinga í sveitarfélaginu. Jafnframt er kallað eftir stuðningi frá atvinnulífinu. Fyrirtæki á svæðinu eru sérstaklega hvött til að leggja málefninu lið, en þau fyrirtæki sem leggja fram styrk munu hljóta sérstakar þakkir á tónleikunum.
Nánari upplýsingar um miðasölu
Tónleikarnir fara fram miðvikudaginn 8. apríl kl. 20:00 í Midgard á Hvolsvelli. Miðaverð er 3500 krónur fyrir 13 ára og eldri. Hægt verður að kaupa miða við hurð eða panta fyrirfram með því að senda tölvupóst á midasala860@gmail.com.
Fyrir þau sem sjá sér ekki fært að mæta eða vilja styrkja málefnið frekar verður tekið við frjálsum framlögum. Hægt er að leggja inn á reikning 0182-05-062557, kt. 520181-0249.

