Eins og undanfarin ár býður sóknarnefnd Selfosskirkju öllum kirkjugestum upp á hressingu að aflokinni messu á páskadagsmorgun, en messan hefst kl. 8. Í beinu framhaldi verður boðið upp á hressingu og páskaegg frá Nettó. Það er ánægjulegt að sjá hvað margir koma í messu á þessum tíma og viðhalda þessari hefð á páskadagsmorgun. Sóknarnefnd býður sóknarbörn og gesti velkomna í Selfosskirkju. Gleðilega páska.
Aðalsafnaðarfundur gekk vel
Nýlega var haldinn aðalsafnaðarfundur Selfosskirkju. Í árskýrslu segir vel frá því hvað starfið er öflugt og fjölbreytt. Við erum svo heppin að hafa á að skipa frábæru fólki innan kirkjunnar sem skilar góðu og áhugaverðu starfi. Kirkjusókn jókst á milli ára og voru að koma yfir eitt hundrað manns í messu að meðaltali um hverja helgi. Alls voru 55 messur sl. ár og komu 6658 kirkjugestir. Morgunbænir voru 98, mættir 366. Alls voru 125 börn fermd, hjónavígslur voru 25 og skírnir voru 87. Útfarir frá Selfosskirkju voru 69. Í Selfosskirkju er ríkjandi sönghefð, alls syngja um 75 einstaklingar í þremur kórum. Kirkjukórinn söng í 43 messum og 28 útförum á sl. ári. Edit A. Molnár stjórnar bæði kirkju- og unglingakór, en Bergþóra Kristínardóttir stjórnar barnakórnum. Verkefni barna- og unglingakóra eru fjölbreytt og krefjandi m.a. að syngja í æskulýðsmessum. Boðið er upp á söngskóla fyrir byrjendur. Þá er æskulýðsstarf kirkjunnar fjölbreytt og öflugt undir stjórn Sjafnar Þórarinsdóttur æskulýðsfulltrúa.
Björn Ingi Gíslason, formaður sóknarnefndar

