Næsti markaður í Emil&Línu á Selfossi verður haldinn um páskahelgina, laugardaginn 4. apríl kl. 12-16, og munu fjölbreyttir listamenn af Árborgarsvæðinu selja handverk sitt auk þess sem Lionsklúbburinn Embla mun standa fyrir vöfflusölu til styrktar góðra málefna. Meðal þeirra sem hafa bás á markaðnum að þessu sinni eru Daley kerti með handgerð kerti, UgluÍris með heklaðar fígúrur, Artrún með keramiklist, Endurlífga Jewellery og Silfurjón með handgert skart og Born in Iceland með handprjónaðar flíkur. Það ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi en meðan á markaðnum stendur verður einnig páskaeggjaleit fyrir börnin og lítil gjöf frá Emil&Lína fyrir þau sem finna egg.
„Viðtökurnar við síðasta markaði voru svo góðar að við vissum að við þyrftum að endurtaka leikinn fljótlega,“ segir Jóna Alla Axelsdóttir, starfsmaður verslunarinnar Emil&Lína á Selfossi, en í desember var fyrsti handverksmarkaður verslunarinnar haldinn með pompi og prakt.
Eitthvað fyrir alla
Emil&Lína er íslensk verslun sem opnaði dyr sínar við Larsenstræti 2 á Selfossi í lok maí í fyrra og hefur notið vinsælda síðan. Verslunin hýsir mörg ólík barnavörumerki eins og Mayoral, LENNE, iCandy og íslenska vörumerkið Born in Iceland, en nú síðast bættist við útivistarmerkið Zo-On og því getur öll fjölskyldan nú verslað á sama stað. Verslanir Emil&Lína eru fjórar: á Selfossi, Akureyri, Laugavegi og í Firði, auk Mayoral verslunar í Smáralind.
„Við erum dugleg við að hafa skemmtilegar uppákomur í verslun okkar hér á Selfossi eins og markaði, föndursmiðjur o.fl. og við erum t.a.m. með prjónamorgna alla þriðjudaga, sem og foreldramorgna alla fimmtudaga. Þetta gerum við til að virkja samfélagið í kringum okkur og útvega fólki tíma og stað til að hittast og tengjast, því stundum er það það eina sem fólk þarf.“ segir Jóna Alla.
„Við þökkum kærlega fyrir góðar móttökur hér á Selfossi og vonumst til að sjá sem flesta á páskamarkaðnum 4. apríl!“ segir Jóna Alla að lokum.
Meðfylgjandi myndir eru brot af því sem verður selt á páskamarkaði Emil&Línu. Myndir: Aðsendar.


