5 C
Selfoss

Aðventuganga og jólatré í Alviðru

Vinsælast

Við undirbúum hátíð ljóssins. Í Alviðru fögnum við aðventunni með göngu út í vetrarríkið, og svo með söng, jólasögu og piparkökum í hlýjunni í gamla bænum. Á Alviðrujörðinni eru víða sjálfsprottin tré sem eiga framtíð sem glæsileg jólatré. Við leitum þeirra í göngunni, fellum og þátttakendur taka þau svo með heim til sín, gegn vægu gjaldi.

Mæting er við gamla Alviðrubæinn kl. 13:00 laugardaginn 13. desember. Eftir göngu, sem verður um 2 km löng, verður boðið upp á heitt að drekka, piparkökur, jólasögu og söng í gamla bæjarhúsinu.Ef við komust í stuð göngum við í kringum! Það gæti verið að jólasveinn kæmi ofan af Ingólfsfjalli til að heilsa upp á börnin. Yndisleg jólastemming á undurfögrum stað undir Ingólfsfjalli.

Alviðra er vestan við brúna yfir Sogið við Þrastarlund, um 10 km. norður af Selfossi við vegamót Biskupstungubrautar og Grafningsvegar. Alviðra er friðland, náttúruskóli og útvistarparadís.

Tökum frá laugardag 13. desember, en við reynum 14. desember ef veðurspáin er slæm fyrir laugardaginn.Fylgist með á fésbókarsíðu Alviðru fræðsluseturs Landverndar hvort breyting verður á dagsetningu vegna veðurs.

Stjórn Alviðru

Nýjar fréttir