Menningarnefnd Flóahrepps, í samstarfi við sópransöngkonuna Berglindi Björk Guðnadóttur, býður íbúa og gesti hjartanlega velkomna á aðventuhátíð í Félagslundi þann 4. desember 2025. Húsið opnar kl. 18:00 og hefst dagskráin kl. 18:30.
Dagskráin verður stútfull af skemmtilegu og fjölbreyttu efni fyrir alla aldurshópa — söngur, dans, tónlistaratriði og jólagleði í ríkum mæli.
Á staðnum verður kakóbar, kruðerí og ýmislegt skemmtilegt fyrir alla fjölskylduna. Börn geta einnig fengið myndatöku með jólasveininum.
Miðasala fer fram á floahreppur.is.
Nánari dagskrá og upplýsingar má finna á floahreppur.is, á Instagram @menningifloa, Facebook Tónahátíð / Fjör í Flóa og á Facebook-síðu Flóahrepps.
Hlökkum til að taka á móti ykkur og eiga frábæra kvöldstund saman.
Gleðilega hátíð.
Menningarnefnd Flóahrepps

