2.9 C
Selfoss

Sjóðurinn góði opnar fyrir umsóknir

Vinsælast

Sjóðurinn góði mun opna fyrir umsóknir um neyðaraðstoð fyrir jól 2025 þann 24. nóvember á vefnum þeirra. Síðasti dagur rafrænna umsókna er 10. desember.

Einnig verður boðið upp á opinn umsóknardag í Selinu við Engjaveg þriðjudaginn 2. desember kl. 11:00–14:00.
Að auki verður hægt að fá aðstoð við umsóknir í síma 772 5406 dagana 4. og 9. desember kl. 16:00–18:00.

Úthlutun fer fram í Selinu við Engjaveg 16. desember kl. 13:00–17:00.

Allar umsóknir þurfa að innihalda tekjur og útgjöld fyrir októbermánuð. Umsóknir verða ekki afgreiddar nema fullnægjandi gögn fylgi umsóknum. Haft verður samband við þau sem ekki uppfylla skilyrði til úthlutunar og þau sem fá úthlutun fá sms um samþykki úthlutunar.

Sjá heimasíðu:
Sjóðurinn Góði

Nýjar fréttir