Hinn árlegi jólabasar Kvenfélagsins á Eyrarbakka er ein af föstum hefðum til margra ára og á sinn fasta sess í hefðum margra.
Undirbúningur hjá basarnefndinni er búinn að vera síðan í september, og er búin að vera skemmtileg samvera að vinna saman að góðum verkefnum sem munu koma sér vel fyrir góð málefni fyrir íbúa okkar.

Til sölu er ýmis varningur sem kvenfélagskonur hafa unnið að, ýmsar hannyrðir, jólavörur, áprenntaðar sérivettur, sultur, kökur, marensar og smákökur, spil, söngbók og steyptar vörur. Ennfremur styður samfélagið vel við okkar störf með því að leggja okkur lið sem ber að þakka.
Kaffi, gos og vöfflusala er til staðar og vonast Kvenfélagið til að sjá sem flesta og eiga notalega stund saman á Stað á Eyrarbakka sunnudaginn 23. nóvember.
Basarinn hefst kl. 14:00.
Einnig verðum við með sölubás á jólamarkaði í Rauðahúsinu. 30. nóvember frá kl. 13-17.
Eins og endranær rennur ágóði til líknar og góðgerðarmála í nærsamfélagi okkar.
Allir hjartanlega velkomnir
F.h. basarnefndar Á.S.


