2.9 C
Selfoss

Valdimar kynnir bókina Utanveltumaður

Vinsælast

Laugardaginn 15. nóv. kl. 11:00 verður bókarkynning í bókasafninu á Selfossi. Þar mun Valdimar Gunnarsson kynna bók sína, Utanveltumaður, ævisögu Frímanns B. Arngrímssonar og lesa úr henni.

Valdimar Gunnarsson er Eyfirðingur. Hann lauk BA-prófi frá HÍ 1971 og kenndi árum saman við Menntaskólann á Akureyri, íslensku, sögu og fleiri greinar. Hann hætti kennslustörfum 2013 og hefur síðan fengist við ýmisleg fræði, einkum ættfræði á snærum IcelandicRoots, sem er vefur helgaður Vestur-Íslendingum.  Hann hefur skrifað nokkrar greinar í blöð og tímarit, þar sem hann hefur grafið eitt og annað upp úr gömlum skjölum og skræðum.

Utanveltumaður er fyrsta bók Valdimars og segir frá sérkennilegum Eyfirðingi sem fór vestur um haf, lærði meira en aðrir, var einnig á Bretlandi og í París áður en hann sneri aftur til Íslands 1914, þá nær sextugur. Hann hafði fjölmargar hugmyndir um margvísleg efni til framfara fyrir land og þjóð en fékk aldrei neinn hljómgrunn hvar sem hann fór. Að sumu leyti má kenna honum um það en hann var líka talsvert langt á undan sinni samtíð og átti ekki heldur neitt bakland hér á landi.

Nýjar fréttir