Það eru spennandi tímar framundan þegar Viðreisn býður í fyrsta sinn fram, í eigin nafni, í Árborg í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Á félagsfundi Viðreisnar í Árnessýslu þann 29. september var formlega samþykkt að boðið verði fram til næstu sveitarstjórnarkosninga í Árborg undir merkjum Viðreisnar. Þetta markar tímamót í áframhaldandi þátttöku flokksins í bæjarmálum sveitarfélagsins og undirstrikar vilja til að byggja upp sterkt og traust framboð. Á fundinum var einnig ákveðið að stilla upp lista með uppstillingu og verður uppstillingarnefnd kosin á næsta félagsfundi.
Undirbúningur fyrir framboðið er þegar hafinn. Viðreisn Árborg mun leggja áherslu á frjálslynda og ábyrga stjórnmálastefnu með skýra framtíðarsýn fyrir samfélagið í Árborg. Þau sem áhugasöm eru um að starfa með framboði Viðreisnar í Árborg eða vilja koma með ábendingar um gott fólk eru hvött til að hafa samband með því að senda tölvupóst á netfangið arnessysla@vidreisn.is. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.
„Ég er mjög spenntur fyrir þessu næsta verkefni Viðreisnar í Árborg,“ segir Axel Sigurðsson, formaður Viðreisnar í Árnessýslu og varabæjarfulltrúi í Árborg. „Við höfum undanfarin ár tekið þátt í bæjarmálunum með Áfram Árborg, þar með talið í núverandi meirihluta. En nú er kominn tími til að bjóða fram sterkan lista í nafni Viðreisnar og halda áfram að byggja upp gott samfélag með áherslu á þjónustu við fjölskyldufólk og alla bæjarbúa. Viðreisn er vel undirbúin og staðráðin í að leiða öflugt og framsækið framboð til sveitarstjórnarkosninga. Með skýra sýn, traustu baklandi og reynslu af þátttöku í bæjarmálum er flokkurinn tilbúinn að taka næsta skref og vinna að farsælli framtíð fyrir Árborg.“

