3.5 C
Selfoss

Krossgátulausn Hafliða Magnússonar

Vinsælast

Í þarsíðustu viku birti Dagskráin krossgátu eftir Hafliða Magnússon og var með því verið að heiðra minningu hans en hann hefði orðið 90 ára þann 16. júlí sl. Hafliði var með vikulegar krossgátur í Sunnlenska fréttablaðinu á Selfossi í rúman áratug í byrjun þessarar aldar og nutu þær mikilla vinsælda lesenda blaðsins.

Fjölmargir hafa lýst ánægju sinni með þetta innlegg Dagskrárinnar í síðustu viku og glímdu við að leysa þessa krossgátu fullir þakklætis fyrir þetta menningarlega framtak.

Hafþór Gestsson á Eyrarbakka er einn þeirra sem ætíð tókst á við krossgátur Hafliða Magnússonar með mikilli ánægju og virðingu fyrir hinni öguðu leikni Hafliða með orð og íslenskt mál. Hafþór á glæsilega stöðu í krossgátusögu Suðurlands því hann náði því að verða krossgátumeistari Suðurlands þann 15. maí árið 2011 í troðfullu Íþróttahúsinu á Stokkseyri á Sumarblóti Hrútavinafélagsins Örvars. Hafliði hannaði þessa keppni og samdi krossgátuna sem Hafþór varð fyrstur að leysa með glæsibrag. Ekki hafa verið fleiri krossgátukeppnir í þessum dúr því Hafliði lést þann 25. júní árið 2011.

Hafþór Gestsson glímir við 90 ára afmæliskrossgátu Hafliða Magnússonar.

Í ljósi þessa fékk Hafþór Gestsson nú fyrstur manna að takast á við krossgátu Dagskrárinnar í 90 ára afmælisminningu Hafliða Magnússonar. Nákvæm tímavarsla var í höndum Jóhanns Páls Helgasonar og réði Hafþór krossgátuna á 27 mínútum. Sagði Hafþór þetta hafa verið sérlega skemmtilega stund og finna svo sannarlega anda Hafliða Magnússonar í krossgátu að nýju.

Undirritaðir, í 90 ára afmælisnefnd Hafliða Magnússonar, viljum þakka Prentmet Odda á Selfossi fyrir þeirra vegalaga þátt í 90 ára afmælisminningu Hafliða Magnússonar frá Bíldudal sem bjó á Selfossi frá árinu 1998.

Björn Ingi Bjarnason
Bjarni Harðarson
Jóhann Páll Helgason

Frá Sumarblóti Hrútavinafélagsins Örvars þann 15. maí árið 2011 í Íþróttahúsinu á Stokkseyri. Til hægri við borðið talið frá hægri: Hjónin Eva Þórarinsdóttir og Hafliði Magnússon, krossgátuhöfundur og hjónin Hafþór Gestsson, krossgátumeistari Suðurlands og Emma Guðlaug Eiríksdóttir. Næst til vinstri við borðið talið frá vinstri: Kristján Runólfsson, Jón Jónsson og Hörður Jóelsson. Þekkja má marga hlæjandi glaða gesti í salnum. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.

Nýjar fréttir