2.9 C
Selfoss

Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures

Vinsælast

Davíð Arnar Runólfsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures. Hann mun hafa umsjón með uppbyggingu og rekstri áfangastaða fyrirtækisins svo sem Fjaðrárgljúfurs, Óbyggðasetursins, Kersins og Raufarhólshellis sem Arctic Adventures rekur ásamt Kynnisferðum.

Davíð Arnar hefur víðtæka reynslu úr ferðaþjónustu. Hann hefur starfað sem leiðsögumaður, landvörður  og rekstrarstjóri í ferðaþjónustu frá árinu 2016. Nú

síðast starfaði Davíð sem framkvæmdastjóri Raufarhólshellis og mun hann halda því starfi áfram samhliða nýju starfi sínu hjá Artic Adventures.

Davíð starfaði áður hjá CCP og Montana State University, en hann lauk BA námi í ljósmyndun þaðan. Davíð er einnig með meistaragráðu í ljósmyndafræðum frá háskólanum í Gautaborg.

Nýjar fréttir