2.9 C
Selfoss

Hraðstefnumót við íslenskuna gekk vonum framar

Vinsælast

Bókasafn Árborgar, Fræðslunetið og Háskólafélag Suðurlands hafa tekið höndum saman og hafa hafið innleiðingu á verkefninu Gefum íslensku séns. Verkefnið var sett af stað við Háskólasetur Vestfjarða þar sem það hefur náð frábærum árangri og rekur nú anga sína í Árborg.

Á dögunum var haldið svokallað hraðstefnumót við íslenskuna í Tryggvaskála sem gekk vonum framar. Meginmarkmið viðburðarins var að veita íbúum af erlendum uppruna tækifæri á því að æfa sig að tala íslensku og ekki síður að þjálfa móðurmálshafa í því að hlusta og svara aftur á íslensku. Skemmtilegar umræður sköpuðust og gleðin skein úr andlitum þátttakenda. Fulltrúar Bókasafns Árborgar á Selfossi, Fræðslunetsins og Háskólafélags Suðurlands mættu með barmnælur, veggpjöld og umræðupunkta til að skapa samtal en flest komust mun lengra og dýpkuðu samtölin enn frekar af sjálfsdáðum.

„Eitt það dýrmætasta sem við höfum í ókunnu landi er tungumálið enda veltur svo margt á samskiptum og tengingu við fólk til að finna sess í nýju samfélagi. Þátttakan í viðburðinum var eftir björtustu vonum og er stefnt að því að halda annað hraðstefnumót við íslenskuna í september og má jafnvel reikna með einum eða tveimur slíkum viðburðum í Uppsveitum Árnessýslu,“ segir í tilkynningu frá Háskólafélagi Suðurlands.

Nýjar fréttir