-1.5 C
Selfoss

Pop-up sýning Guðrúnar Arndísar Tryggvadóttur á Selfossi

Vinsælast

Í tilefni myndlistar- og Menningarmánaðar í Árborg forsýnir Guðrún Arndís Tryggvadóttir listakona, fjölda splunkunýrra „Ímyndana“ (það ferli, sem leiðir til hugmyndar eða skipar hugmyndum í nýtt mynstur, e.imagination) á pop-up sýningu sem haldin verður í risastóru iðnaðarhúsnæði að Eyravegi 65 á Selfossi, við hliðina á Nytjamarkaðnum.

Sýningin verður opin frá kl. 11:00 – 18:00 dagana 8. og 9. október 2022.

Guðrún Arndís Tryggvadóttir nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1974-78, École Nationale Supérieure des Beaux-Arts í París 1978-79 og Akademie der Bildenden Künste í München 1979-83.

Hún hefur haldið og tekið þátt í sýningum hér heima, í Evrópu og í Bandaríkjunum og hlotið fjölda viðurkenninga, bæði fyrir myndlist sína og fyrir störf sín á sviði nýsköpunar en hún hefur verið frumkvöðull á ýmsum sviðum; stofnað og rekið útgáfufélag, myndlistarskóla og listræna hönnunarstofu og gallerí sem hún rak í Þýskalandi og hér heima um árabil. Guðrún er einnig frumkvöðull á sviði umhverfismála en hún stofnaði umhverfisfræðsluvefinn nature.is/natturan.is sem hún rak um tíu ára skeið.

Guðrún vinnur aðallega stór verk með olíu á striga en málverk hennar byggja á hugmyndafræðilegum grunni og eru oft mjög persónuleg og tengjast tíma- og efnishugtakinu. Guðrún býr og starfrækir vinnustofu sína á Selfossi.

Random Image

Nýjar fréttir