8.9 C
Selfoss

Innivinna í fullum gangi

Vinsælast

Vinna við nýtt hjúkrunar­heimili við Árveg á Sel­fossi gengur vel segir Leifur Stefánsson, verkefna­stjóri hjá Eykt. „Málningar­vinnan er hafin innandyra, flísalagnir, hurðir og innréttingar eru komnar svo það er mikið að gerast þar. Þá er allt komið á fullt í klæðningarvinnu utanhúss,“ segir Leifur.

Lóðavinna eftir verslunarmannahelgi

Samkvæmt Leifi verður farið í lóðarvinnu eftir verslunar­manna­helgi. Þá fara vinnu­búðirnar af lóðinni og fá að færa sig inn á lóðina hjá Mjólkur­samsölunni meðan verið er að klára. Aðspurður um að aðfanga­keðjur séu hægfara vegna Covid – 19 segir Leifur það rétt og þeir eins og aðrir finni fyrir því að hörgull sé á efni og langan tíma taki að fá efni til landsins að utan m.a. vegna skorts á gámum og flutningsplássi í skipum. Hann segir þó að verkefnið hafi almennt gengið vel og ekkert stórt sem komið hafi upp á. Þá er áætlað að verklok séu í nóvember – desember á árinu.

Nýjar fréttir