1.7 C
Selfoss

Skóflustunga tekin að nýju hverfi í landi Jórvíkur á Selfossi

Vinsælast

Föstudaginn 12. mars sl. var tekin fyrsta skóflustungan að nýju hverfi í landi Jórvíkur sem er staðsett sunnan núverandi byggðar og til austurs af svo kölluðu Bjarkarstykki á Selfossi. Fyrrum eigendur landsins, þau Rúnar Gestsson og Sigrún Erla Sigurðardóttir sáu um að taka skóflustunguna fyrir hönd framkvæmdaraðila. Akurhólar ehf. keyptu Jórvík land 1 árið 2017 og hafa unnið að því að skipuleggja svæðið í samráði við bæjaryfirvöld frá þeim tíma.
Hermann Ólafsson hjá Land­hönnun ehf. sá um hönnun á deiliskipulaginu fyrir hönd land­eiganda en Verkfræðistofan HNIT ehf. var með yfirumsjón á lagna- og gatnahönnun. Akur­hólar ehf. eiga 43,9 ha. lands á svæðinu. Það sem nú er tekið í notkun eru 14,9 ha. Á svæðinu er gert ráð fyrir allt að 350 íbúðum í blandaðri byggð, fjölbýlis-, rað/ par- og einbýlishús. Þessi fyrsti áfangi rúmar því um 8-900 nýja íbúa.
„Hverfið hefur verið hannað í samráði við Sveitarfélagið Árborg frá upphafi með tilliti til tenginga innan hverfisins og kemur hverfið til með að renna saman og mynda skemmtilega heild við lönd sveitarfélagsins sem það er að skipuleggja í landi Bjarkar.
Ljóst er að þessi viðbót mun styðja við þann mikla áhuga sem er á Selfossi um þessar mundir og verður til þess að styrkja Sveitarfélagið Árborg til lengri tíma litið enda hefur sú myndarlega uppbygging sem átt hefur sér stað í sveitarfélaginu síðustu misseri vakið verð­skuldaða athygli og hefur haft jákvæð áhrif á sveitarfélagið í heild,“ segir í tilkynningu frá Akurhólum ehf.
Akurhólar ehf. er fram­kvæmda­raðili á svæðinu en félagið hefur samið við Borgar­verk ehf. um framkvæmd verksins. Verkinu er skipt upp í tvo áfanga. Gert er ráð fyrir að fyrsta áfanga gatnagerðar verði lokið í október á þessu ári og seinni áfanga svo í maí 2022. Vonast er til að byggingaframkvæmdir í hverfinu geti hafist í lok júní í sumar, en forsvarsmenn Akurhóla ehf. vonast til að hverfið verði full byggt á næstu 3-4 árum.

Nýjar fréttir