-0.6 C
Selfoss

Framkvæmdir á nýjum Suðurlandsvegi ganga vel

Vinsælast

Í apríl 2020 var skrifað undir verksamning við ÍAV um áframhaldandi framkvæmdir við Hringveginn milli Biskupstungnabrautar og Hveragerðis. Verkið er nýbygging og endurgerð á núverandi hringvegi ásamt öðrum tilfallandi verkefnum. „Allt gengur ljómandi vel og er á áætlun og jafnvel aðeins á undan. Við erum núna að byrja á fyrstu brúnni í þessum hluta verksins, brú sem liggur yfir Gljúfurholtsá. Þá erum við að fara að byrja á undirgöngum þar sem hringvegurinn þverar Ölfusveginn niðri við Kotströnd. Þá er búið að klára hringtorgið við Biskupstungnabrautina. Nú er verið að bíða eftir því að fargið sem sett var í vegstæðið við Ingólfsfjall sígi niður og við áætlum að það verði eitthvað fram á mitt sumar. Svo verður fargið tekið upp áður en vegavinnan hefst,“ sagði Oliver Claxton, verkefnastjóri jarðvinnu hjá ÍAV í samtali við Dagskrána.

Random Image

Nýjar fréttir