2453
Miðvikudagur 13. júní 2018 11 DAGSKRÁIN - Fréttablað Suðurlands Þ ann 1. júní sl. var undirritaður samningur um bætt viðbragð neyðaraðstoðar í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Verkefnið felur í sér að Heilbrigðisstofnun Suð urlands (HSU) staðsetur sér útbúinn viðbragðsbíl ásamt sjúkraflutningamanni á dagvakt í þjóðgarðinum. Sjúkraflutninga maður mun sinna útköllum innan þjóðgarðsins er varða öryggis- og viðbragðsmál, þar á meðal útköll vegna slysa, sjúkdóma eða önnur atvik sem koma geta upp í þjóðgarðinum. Viðvera þjónustunnar miðast við dagvakt alla daga en sá tími er fjölfarnasti tími ferðamanna. Sérútbúinn viðbragðsbíll verður á Þingvöllum í sumar Viðbragðsbíll sem verður staðsettur á Þingvöllum í sumar. Mynd: HSU. Herdís Gunnarsdóttir forstjóri HSU og Einar Á. E. Sæmundsen þjóðgarðsvörður á Þingvöllum undirrita samninginn. Mynd: HSU. Fyrir utan að sinna neyðar aðstoð þegar hennar er þörf verður einnig aukin kennsla til starfsmanna þjóðgarðsins í skyndihjálp. Sýning á ljósmyndum Sigurbjörns Bjarnasonar Þ ann 29. maí sl. opnði á Bóka safninu í Hveragerði sýn ing Sigurbjörns Bjarnasonar á ljósmyndum sem hann hefur tekið af þeim húsum sem rifin voru eftir jarðskjálftana 29. maí 2008 í Hveragerði. Þarna er um að ræða eldri myndir af um ræddum húsum teknar á ýmsum tímum, myndir sem teknar voru á meðan verið var að rífa húsin og loks alveg nýjar myndir teknar á svipuðumstað og elstumyndirnar og sýna svæðið eins og það lítur út núna í maí, með eða án húsa. Einnig eru á sýningunni fleiri myndir tengdar þessum húsum og jarðskjálftanum rúllandi á skjá. Sigurbjörn hefur afhent bókasafninu myndirnar til eignar. Starfsfólki Bókasafnsins langar til að þetta verði lifandi sýning. Hún er sett upp með lág marks texta, en svo er vonast til að þeir sem koma og skoða geti bætt við upplýsingum og jafn vel sögum sem tengjast þessum húsum og þannig mun sýningin vinda upp á sig. Sýningin stendur til 27. júní og er opin um leið og safnið, mánudaga kl. 11-18:30, þriðju daga - föstudaga kl. 13-18:30 og laugardaga kl. 11-14. SUMARFÖGNUÐUR Í tilefni af 1.árs afmæli PIER á Selfossi Fimmtudagurinn 14.júní 2018 Opið 11:00 - 22:00 í PIER á SELFOSSI Tilboð gilda í öllum verslunum PIER 14.06.2018 Gildir ekki með öðrum tilboðum. 25 % AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM 0.00.20.40.60.81.0 50 % AFSLÁTTUR AF ÖLLUM SUMARVÖRUM ALLT AÐ 50 % ALLT AÐ AFSLÁTTUR AF HÚSGÖGNUM Svalandi sumardrykkir og lifandi tónlist frá 19:00-21:00 HEYRNARÞJÓNUSTA Heyrn, Hlíðasmára 11, Kópavogur, heyrn@heyrn.is Tímapantanir - 534 9600 Ellisif Katrín Björnsdóttir Heyrnarfræðingur veitir faglega ráðgjöf Nánari upplýsingar www.heyrn.is Heyrðu umskiptin Fáðu heyrnartæki til reynslu Kæru Sunnlendingar Verðumá Selfossi í Grænumörk 5. föstudaginn 25. nóvember. Verið velkomin . septe ber. 2. júní.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NDk5NDcz