2463

Miðvikudagur 22. ágúst 2018 3 DAGSKRÁIN - Fréttablað Suðurlands Rakarastofa Björns og Kjartans í Miðgarði á Selfossi fagnaði 70 ára afmæli þann 15. ágúst síðastliðinn. Á þessu ári eru jafn- framt 50 ár síðan Björn Ingi Gíslason hóf störf hjá fyrirtækinu. F rumherjinn Gísli Sigurðsson, rakara- meistari, söngmaður og eftirherma, kom á Selfoss 15. ágúst árið 1948 með rakarastofu sína og opnaði á Eyravegi 7 í verslunarhúsnæði Hildiþórs Loftssonar. Stofuna rak hann til ársins 1953 eða þar til hann flutti í nýbyggt íbúð- arhús sitt að Kirkjuvegi 17. Þar bjó Gísli ásamt Rannveigu Sigríði konu sinni og tveimur sonum, Birni Inga og Gylfa og rak einnig rakarastofuna í forstofuherbergi hússins. Björn Ingi hóf störf 1968 Björn Ingi sonur Gísla hóf störf á stofu föður síns árið 1968 þegar hann fór að kenna heilsubrests. Gísli lést 5. júní árið 1970. Björn Ingi tók við rekstrinum og flutti rakarastofuna þann 4. desember árið 1971 á Eyraveg 5. Kjartan kaupir helmingshlut Emilía Gränz, Elísabet Pálsdóttir, Kjartan sonur Björns og Heiðdís Einarsdóttir, lærðu fagið á rakarastofu Björns á Eyra- veginum. Árið 1995 keypti sonur Björns, Kjartan helmingshlut í rakarastofunni sem þá hét Rakarastofa Björns Gíslasonar. Þann 14. nóvember 1997 fluttu þeir feðgar stofuna í Miðgarð á Austurvegi 4 og fljótlega eftir það breyttist nafn stof- unnar í Rakarastofa Björns og Kjartans. Árið 1999 hóf Björn Daði Björnsson, sonur Björns Inga, nám hjá Kjartani, eldri bróður sínum, sem þá var orðinn meistari í faginu. Björn Daði kemur inn í reksturinn Árið 2006 keypti Björn Daði sig inn í fyrirtækið og eiga þeir feðgar þrír fyrir- tækið saman í dag. Starfsmenn eru fimm. Auk eigendanna er það Guðrún Þórhalls- dóttir og í sumar kom svo Mohammad Alibo til starfa. Hann kom ásamt fjöl- skyldu sinni sem flóttamaður frá Sýrlandi til starfa og er að hefja nám í faginu á haustmánuðum. Rakarastofa Björns og Kjartans á tímamótum – 70 ár frá því Gísli Sigurðsson opnaði rakarastofu á Selfossi Starfsfólk Rakarastofu Björns og Kjartans í dag. F.v.: Mohammad Alibo, Kjartan Björnsson, Björn Ingi Gíslason, Guðrún Þórhallsdóttir og Björn Daði Björnsson. Gísli Sigurðsson flutti á Selfoss 15. ágúst 1948 með rakarastofu sína og opnaði á Eyravegi 7. Á afmælisdaginn, þ.e. miðvikudaginn 15. ágúst síðastliðinn, var opið hús hjá Rakarastofunni þar sem viðskiptamenn og vinir frá liðnum árum kíktu við í kaffi og afmælisköku. Síðar í haust hyggjast feðg- arnir boða til sérstaks afmælisfagnaðar með viðskiptamönnum sínum þar sem far- ið verður yfir sögu fyrirtækisins og menn gera sér glaðan dag.

RkJQdWJsaXNoZXIy NDk5NDcz