2453

8 Miðvikudagur 13. júní 2018 DAGSKRÁIN - Fréttablað Suðurlands Í síðasta mánuði var hafist handa við að skipta um gólf í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi. Er það fyrsta skrefið í breyting- um sem felast í því að hand- knattleiksdeild Selfoss flytur sig um set úr íþróttahúsi Valla- skóla yfir í Iðu. Samhliða flytja Selfoss-karfa, frjálsíþróttadeild Selfoss, knattspyrnudeild Sel- foss og Íþróttafélagið Suðri starfsemi sína yfir í Vallaskóla. Að sögn Braga Bjarnasonar, menningar- og frístundafulltrúa Árborgar, er meginástæðan fyrir þessum breytingum sú að sam- kvæmt kröfu HSÍ var íþróttahús Vallaskóla of lítið fyrir hand- boltann og ekki löglegt. „Húsið er búið að vera á undanþágu í mörg ár. Þannig að við urðum eiginlega að fara í þetta. Bón- usáhrifin við flutningana er að við getum nýtt fermetrana bet- ur. Handboltinn getur æft í Iðu í tveimur hlutum þó þetta séu ekki alveg tveir vellir og karf- an og frjálsar geta svo nýtt þrjú bil í Vallaskóla betur til æfinga hjá sér. Þannig að við ættum að nýta húsin betur, sem er mjög jákvætt,“ segir Bragi. Allur handbolti yfir í Iðu Stefnt er að því að hand- knattleiksdeildin fari yfir í Iðu og verði þar með allar sínar æf- ingar þ.e. alla flokka. Deildin byrjaði í maí að vinna aðeins með Sveitarfélaginu og Ríkis- eignum, sem eiga húsið, við það að fjarlægja parketið af gólfinu. Að sögn Braga verður byrjað í júní á að undirbúa fyrir parket- lögn. Allur júní og líklega fram í júlí fer síðan í parketlögnina. Til stendur að ný áhorfendastúka komi og verði sett upp seinnipart sumars. Hún verður með tveim- ur röðum meira en sú sem var fyrir þannig að hún á að rúma svipaðan áhorfendafjölda og í Íþróttahúsin munu nýtast betur við flutningana Vallaskóla eða 600–750 manns. „Þetta verða bekkir þannig að það á væntanlega eftir að koma í ljós hvað stúkan kemur til með að taka marga. Stúkan verður veggfest og hægt að draga hluta hennar inn til að fá meira pláss við æfingar og kennslu í húsinu. Við eigum síðan eftir að vinna nánar með deildinni að lausn- um varðandi blaðamannastúku, myndatökuaðstöðu og svoleið- is. Við vitum nokkurn veginn hvernig við ætlum að gera það en eigum aðeins eftir að útfæra það betur. Sama á við um nýja leikklukku sem verður sett upp seinna í sumar. Deildin er að- eins byrjuð að koma sér fyrir og síðan kemur þetta bara eitt af öðru,“ segir Bragi. Karfa, frjálsar, fótbolti og Suðri í Vallaskóla Við skiptin fara þær grein- ar sem voru í Iðu með allar sínar æfingar yfir í íþróttahús Vallaskóla. Þar er um að ræða körfuknattleiksfélagið, frjáls- íþróttadeildina og Íþróttafélagið Suðra. Einnig er gert ráð fyrir að fótboltinn verði þar líka eitthvað með inniæfingar. Bragi segir að undirbúningur fyrir nýtt knatt- hús sé í vinnslu þannig að vænt- anlega fari stór hluti af frjáls- íþróttum og fótboltanum yfir í það hús þegar að því kemur því þar verði inniæfingaaðstaða fyr- ir báðar greinar. Bragi segir að það geti orðið eftir næsta vetur. Við það ættu einnig að opnast fleiri möguleikar fyrir almenn- ingsíþróttir, blak, badminton og fleira. „Í Vallaskóla verða ýmsar framkvæmdir og þá aðallega fyrir körfuna. Þar eru gamlar körfur sem við munum skipta út. Einnig verður gólfið og línurn- ar lagaðar þannig að það henti þeim greinum sem eru að koma þar inn. Fyrir frjálsar verður sett upp kastnet og svo er verið að skoða hvað þarf af búnaði og öðru slíku til að allar greinar geti notið sín og í raun í báðum húsunum,“ segir Bragi. Reynum að láta áætlanir standast „Varðandi tímasetningar og flutninga sáum við strax að fyrstu plön myndu ekki standast. Það eru seinkanir eins og gerist í þessu öllu, hlutir komast ekki í gám og eitthvað álíka. Í júlí ættu samt bæði hús að vera orðin hæf til æfinga. Síðan með haustinu klárum við allt sem þarf fyr- ir keppnistímabilin, þannig að leikklukka, blaðamannaaðstaða og annað verður þá væntanlega klárað í ágúst eða september. Grunnurinn er að allt verði klárt fyrir fyrstu leiki bæði handbolt- inn í Iðu og körfuboltinn í Valla- skóla. Við sjáum ekkert því til fyrirstöðu,“ segir Bragi. Heilt yfir segir Bragi forsvarsmenn greinanna hafa tekið vel í þessa flutninga. Auðvitað séu skiptar skoðanir og kannski mestmegnis tilfinn- ingar. „Menn eru búnir að æfa í sama húsinu í mörg ár og erfitt að skilja við það. Ég skil það bara mjög vel. Svo eru líka plús- ar og mínusar við aðstöðurnar. Í Iðu er góð lyftingaaðstaða en í Vallaskóla smávegis aðstaða en miklu minni. Það hefur auðvitað einhver áhrif en það eru kostir og gallar báðum megin. Flestir hafa verið að vinna í lausnum og að þetta bæti aðstöðuna frekar en hitt. Það eiga samt allir að sjá bætta aðstöðu í þessu á einhvern hátt. Mér heyrist það líka, sem er mjög jákvætt.“ Unnið í samráði við notendurna „Við höfum reynt að vinna þetta í samráði við félögin og deild- irnar þannig að þær hafi alltaf eitthvað um þetta að segja. Við erum búin að tala um þetta í 2–3 ár með handboltanum eða frá því að HSÍ setti pressuna á okk- ur fyrir alvöru. Það var engin pressa af hálfu sveitarfélagins þannig séð. Við vildum líka leyfa félaginu að stýra þessu að mestu sem hefur reynst okkur vel. Heildarkostnaður vegna þessara flutninga þ.e. í báðum húsunum er líklega einhvers staðar á bilinu 55 til 60 milljón- ir króna. Það liggur m.a. í nýju gólfefni, stúku og klukku í Iðu, ásamt nýjum körfum í Valla- skóla,“ segir Bragi að lokum. Viðtal: ÖG. Bragi Bjarnason, menningar- og frístundafulltrúi Árborgar, í íþróttasalnum í Iðu. Mynd: ÖG. Við höfum reynt að vinna þetta í samráði við félögin og deild- irnar þannig að þær hafi alltaf eitthvað um þetta að segja. „ „ Hvað segja forsvarsmenn handboltans og körfuboltans um flutningana? Þ órir Haraldsson, formaður handknattleiksdeildar Umf. Selfoss og Gylfi Þorkelsson, formaður Selfoss-körfu, voru spurðir hvað þessir flutningar feli aðallega í sér fyrir þeirra félög. Einnig hvort það væri eitthvað sem þeir muni gera eða breyta hjá sér í tengslum við flutningana. „Við neyðu- mst auðvitað til flutninga af því að salurinn í Vallaskóla er of þröngur fyr- ir nauðsynlegt öryggissvæði fyrir leikmenn en úr því húsi eiga leikmenn og áhorfendur margar góðar minningar. Megin breytingin við að flytja í Iðu er að áhorf- endur geta betur notið þess að horfa á leiki og með því að áhorfendabekkir eru útdrag- anlegir þá verður meira pláss til æfinga í fjölmennum yngri flokkum deildarinnar. Því mið- ur lítur samt út fyrir að iðkendur okkar þurfi að æfa fram til kl. 10 öll kvöld, sem er auðvitað varla boðlegt fyrir unglinga á skólaaldri. Stóra verkefni deildarinnar og áhugafólksins er auðvitað að flytja frábæra stemningu og stuðning inn í Iðu og búa þar til öflugan heimavöll sem skil- ar árangri og ánægju fyrir alla sem að koma. Yngri flokkarnir fá betri æfinga- og keppnisað- stöðu á stærra gólfi og nálægð við keppnina verður meiri, bæði í yngri og eldri aldursflokkum. Þá styttist auðvitað í félagsað- stöðuna á íþróttavellinum sem því miður er ekki pláss fyrir í Iðu en deildin lítur á flutninginn sem tækifæri til að gera betur fyrir iðkendurna.“ „Á þessu eru jákvæðar hlið- ar. Í fyrsta lagi verður íþrótta- hús Vallaskóla e ndu r ný j a ð , settar upp nýj- ar körfur og gólfið málað fyrir körfubolta. Þetta verð- ur glæsilegt körfuboltahús. Í öðru lagi getum við verið með fleiri hópa við æfingar í einu, það eru þrír vellir í Vallaskóla en bara tveir í Iðu. Í þriðja lagi mun flutningurinn breyta miklu fjárhagslega, skapa aukna möguleika á auglýsingastyrkj- um. Fjölbrautaskólinn hefur staðið í vegi fyrir körfubolta­ félaginu hvað það varðar í Iðu, þó skyndilega megi setja aug- lýsingar þar á gólf og veggi þegar við förum. Auðvitað söknum við Iðu en allir innan félagsins eru jafnframt spenntir fyrir nýjum tímum. Það hefur hjálpað mikið til að sveitarfé- lagið hefur sýnt skilning og góð- an vilja til að þessar breytingar verði snuðrulausar og jákvæðar fyrir alla aðila. Við erum spennt og getum ekki beðið að byrja á nýjum heimavelli.“ Þórir Haraldsson: Tækifæri til að gera betur Gylfi Þorkelsson: Allir spenntir fyrir nýjum tímum Stóra verkefni deildar- innar og áhugafólksins er auðvitað að flytja frábæra stemningu og stuðning inn í Iðu

RkJQdWJsaXNoZXIy NDk5NDcz