2453

Miðvikudagur 13. júní 2018 7 DAGSKRÁIN - Fréttablað Suðurlands Steinþór Skúlason, varaformaður Landssamtaka sláturleyfishafa. F ramkvæmdastjóri félags atvinnurekanda (FA) hefur gengið öðrum harðar fram í því að gagnrýna að ríkið bjóði upp tollkvóta sem leyfa tollfrjálsan innflutning kjöts meðal annars með nýjum tollasamningi við EB sem mun auka innflutt kjöt til landsins um nálægt 2600 tonn á ári. Málflutningur FA hefur geng­ ið út á að heildsalar vilja fá kvót­ ana gefins því að þannig munu þeir skila ávinningi af þeim til neytenda sem núverandi kerfi geri ekki. Það má álasa undirrituðum fyrir að hafa ekki svarað fyrr þeirri rökleysu sem í málflutn­ ingi FA felst. Uppboð á takmörkuðum gæðum, í þessu tilfelli inn­ flutningskvóta, er mjög skilvirk og gegnsæ leið þar sem allir sitja við sama borð. Hver aðili býður það gjald sem hann telur að hann geti lagt á vöruna við sölu og því kaupendur á markaði sem að lokum greiða tilboðsgjaldið. Ríkissjóður fær gjaldið sem innflytjendur bjóða. Það ætti öllum að vera ljóst að ríkissjóður er ekkert annað en samnefnari allra Íslendinga og þar með allra neytenda landsins. Núverandi fyrirkomulag tryggir því gegnsæi og hámarks skil­ virkni og að allur ávinningur skilar sér til neytenda. Það er svo ríkisvaldsins að ákveða hvernig þessum ávinningi er komið til einstakra neytenda. Það má gera með því að lækka svokallaðan matarskatt, með því að efla heil­ brigðiskerfið eða með annarri ráðstöfun sem nýtist almenningi í landinu. Krafa Félags atvinnurekenda um að hætt verði að bjóða út innflutningskvóta er því krafa um að færa verulega fjármuni frá neytendum til heildsala. Formgallar voru á fram­ kvæmd útboða tollkvóta í nokkur ár og fyrirkomulagið dæmt sem ólögleg skattheimta. Vegna þess hefur ríkissjóður endurgreitt innflytjendum um 3000 milljónir króna eins og fram kemur í fréttabréfi FA hinn 8. febrúar síðastliðinn. Þessar 3000 milljónir eru neytendur landsins búnir að greiða inn­ flytjendum í vöruverði þeirra vara sem fluttar voru inn. Það eru ekki allir inn­ flytjendur félagsmenn í Félagi atvinnurekenda en flestir heild­ salar eru það og má áætla að þeir hafi fengið a.m.k. helming þeirra 3000 milljóna sem ríkissjóður og þar með neytendur landsins Hvenær skila kjötinnflytjendur 3000 milljónum króna til neytenda? UPPSPRETTAN Fjölskylduhátíð í Skeiða– og Gnúpverjahreppi 15.-16. júní Verið velkomin! 10:00 Myndasýning frá Héraðsskjalasafni Árnesinga: Gömlum ljósmyndum úr byggðarlaginu varpað upp á stóra tjaldið í Árnesi. Starfsmaður leiðir sýningargesti í gegn um sýninguna og leitast verður við að nafngreina fólk og staði. 17:00 Brokk og skokk Skaftholtsréttum— Hestar og menn etja kappi í bráðskemmtilegri keppni. Skráning á facebook. 18:00 Skemmtidagskrá í Neslaug vegna 20 ára afmælis laugarinnar. Pizzavagninn—Harmonikkuleikur—Bíbí og Björgvin Franz troða upp. Föstudagurinn 15. júní UPPSPRETTUGLEÐI Í ÁRNESI 10:30 Miðasala á Lottusýninguna hefst. Uppsprettuverð kr. 1000– gildir ekki með öðrum tilboðum. 11:00 Leikhópurinn Lotta—Gosi 11:30Ͳ13:30 Sumargóðgæti úr sveitinni: Ljúfengur málsverður á hlægilegu verði. 11:30 Bjástrað á bæjunum— sýning og sala á listmunum , munngæti og ýmsum varningi. 12:00 Hoppukastali, loftboltar , Uppsprettuþraut , lukkuhjól 13:00 HM í fótbolta—ÍslandͲArgentína: Landsleikurinn sem allir bíða eftir verður sýndur á stóra tjaldinu. 13:30Ͳ16:30 ÁrnesͲCafé opið 15:00 LokaͲathöfn @uppsprettan.skeidgnup Laugardagurinn 16. júní Nánari upplýsingar á facebook: STÓÐHESTAR Tökum á móti stóðhestum í hagagöngu 11. júní til 13. október. Félag búfjáreigenda á Eyrarbakka Sími 699 0713 hafa endurgreitt innflytjendum. Það hlýtur að vera brýnt verk­ efni framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda að sjá til þess að heildsalar í félagsskap hans endurgreiði neytendum þá miklu peninga sem þeir hafa fengið frá neytendum með endur­ greiðslunum. Þetta má gera með ýmsum hætti en einfalt að endurgreiða ríkissjóði sem er fulltrúi allra neytenda landsins. Ef þetta er ekki gert þá er skýrara en á björtum sumardegi að málflutningur Félags atvinnu­ rekenda snýst ekki um hagsmuni neytenda heldur um hagsmuni heildsala.

RkJQdWJsaXNoZXIy NDk5NDcz