2453
Miðvikudagur 13. júní 2018 17 DAGSKRÁIN - Fréttablað Suðurlands Kynning fimmtudaginn 14. júní kl. 14 – 17. 20% afsláttur af öllum Madara vörum á meðan á kynningu stendur. Kaupauki fylgir ef keypt er fyrir 5.900 kr. eða meira. DEEPER THAN SKIN – HÚÐVÖRUR SEM NÁ LENGRA! MADARA Madara húðvörurnar eru margverðlaunaðar og einstakar í sinni röð! Þær ná enn lengra en húðlögin, láta okkur líta betur út að innan sem utan. H in vinsæla sjálfsævisaga Kim Leine, Kalak, er kom- in út í kilju hjá Bókaútgáfunni Sæmundi. Kim Leine hlaut Bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs fyrir Spámennina í Botnleysufirði sem var afar vel tekið af íslensk- um lesendum þegar hún kom út í þýðingu Jóns Halls Stefánsson- ar haustið 2015. Kalak sem Jón Hallur hefur nú þýtt er ekki síð- ur athyglisvert verk og jafnframt til skilningsauka á Spámönnun- um og Morten Falk, aðalpersónu þeirrar bókar. Kalak er skáldævisaga. Við kynnumst ungum manni sem alinn er upp í samfélagi Votta Jehóva í norskri sveitabyggð, samfélagi þar sem hinn drottn- andi og refsandi Guð er allt umlykjandi. Tákn frelsisins er samkynhneigður faðir drengsins sem hefur yfirgefið fjölskylduna og haldið til Kaupmannahafnar. Sextán ára hefur Kim fengið nóg og strýkur til föður síns, en fer þar úr öskunni í eldinn. Sem útskrifaður hjúkrunarfræðingur flýr söguhetjan Danmörku og skömmina sem hann hefur þegið í föðurarf. Kim sest að á Grænlandi ásamt fjölskyldu sinni og stór hluti bókarinnar er lýsing á lífinu þar. Hann lærir mál heimamanna og ávinnur sér að vera kallað- ur „kalak“ sem er öðrum þræði skammaryrði þótt upprunaleg merking orðsins sé gegnheill Grænlendingur. Við sögu koma skrautleg og fjölbreytileg störf hjúkrunarfræðings í grænlensk- um byggðum. En einnig mis- friðsamar ástkonur, veiðiferðir og barferðir. Í sögulok lyfjamis- notkun, uppgjöf og brottrekstur. Bókin Kalak er komin út í kilju Á þessu ári fagnar leikskólinn Heklukot á Hellu sjötta ár- inu sínu sem grænfánaleikskóli. Af því tilefni fékk leikskólinn afhentan fjórða grænfánann á vorhátíð foreldrafélagsins sem haldin var þann 24. maí síðast- liðinn. Börnin af elstu deildinni tóku við fánanum uppi á sviði ásamt tveimur starfsmönnum elstu deildarinnar og leikskóla- stjóra. Íþróttaálfurinn og Solla stirða Vorhátíð og grænfáni í Heklukoti mættu hress eftir afhendingu fánans og skemmtu krökkunum. Fimleikadeildin sá um andlits- málningu og þrautabraut. Í lokin fengu allir grillaðar pylsur og svala. Í Heklukoti er flokkað plast, pappír og reynt að minnka mat- arsóun eins mikið og hægt er. Notaðir eru fjölnota pokar fyrir óhrein föt barnanna sem foreldr- ar skila síðan hreinum í leikskól- ann. Pokar utan af bleyjum eru nýttir sem ruslapokar í rusla- tunnur. Í stað þess að vera með bréfþurrkur til að þurrka hendur eftir handþvott eru notuð niður- klippt handklæði sem eru síðan þvegin og notuð aftur. s. 482 1944 dfs@dfs.is
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NDk5NDcz