2436
Miðvikudagur 14. febrúar 2018 Vefútgáfa: dfs.is Síðan 1968 51. árgangur dagskrain@prentmet.is Sími 482 1944 · Eyravegi 25 · 800 Selfoss Nr: 2436 9HM]LYR[HRHY Ç =LYZS\U kY`NNPZ T`UKH]tSH VN SVM[UL[ZRLYÄ 5L`óHYZxTP Eyravegi 32 · Selfossi · Sími 480 1160 www.arvirkinn.is Selfossi Sími 699 1985 823 6656 Brrr... Það er farið að kólna. Nú er rétti tíminn til að yfirfara og stilla hitakerfi og snjóbræðslur fyrir veturinn. Snögg og góð þjónusta! Byggt við kaupfélagshúsið á Hvolsvelli Kosningaundirbúningur víða að fara af stað Í vor verður kosið til sveitarstjórna hér á landi. Margir stjórnmálaflokkar og framboð hafa nú þegar hafið undirbúning. Að mörgu er að hyggja og má þar m.a. nefna málefnaskrá og svo auð- vitað mönnun framboðslista. Á Suðurlandi verð- ur kosið í fimmtán sveitarfélögum, átta í Árnes- sýslu, þremur í Rangárvallasýslu og tveimur í Vestur-Skaftafellssýslu. Auk þess verður kosið í Vestmannaeyjum og Sveitarfélaginu Hornafirði. Smári Björn Stefánsson og Aldís Hafsteinsdótt- ir mættu á opið hús hjá Sjálfstæðismönnum í Hveragerði um liðna helgi. Þar var boðið upp á kosningakaffi ásamt spjalli um sveitarstjórnar- málin. Í síðustu viku afhentu Friðrik Pálsson, eigandi Hótels Rang- ár, og Bragi Hansson, formaður starfsmannafélagsins, Flug- björgunarsveitinni á Hellu og Björgunarsveitinni Dagrenn- ingu á Hvolsvelli peningagjafir, eina milljón króna hvorri sveit. „Við ákváðum fyrir tveimur árum að þiggja ekki þjórfé á Hótel Rangá. Við bjóðum gest- unum, sem mörgum þykir ánægjulegt að leggja fram ein- hverja fjármuni sem virðingar- vott fyrir góða þjónustu, að láta peningana renna til björgunar- sveitanna á svæðinu. Þetta hef- ur vakið afskaplega jákvæð við- brögð meðal gesta okkar,“ segir Friðrik. Samtals hefur starfsmanna- félagið og Hótel Rangá gefið peningagjafir að upphæð 2,4 milljónir króna til sveitanna. Fulltrúar björgunarsveitanna í Rangárþingi taka við peningagjöfum frá starfsfólki á Hótel Rangá. Gáfu tvær milljónir króna til björgunarsveitanna í Rangárþingi U m þessar mundir standa yfir miklar framkvæmdir við gamla kaupfélagshúsið við Aust- urveg á Hvolsvelli. Sveitarfélag- ið Rangárþing eystra, sem stend- ur að framkvæmdunum ásamt Jáverki, keypti húsið og yfirráð að landi miðbæjarins af Reitum ehf. fyrir nokkrum árum. Í húsnæðinu, sem nú er lokað vegna framkvæmdanna, verður ný lágvöruverðsverslun Krón- unnar og er stefnt að því að opna hana fyrir páska. Á efri hæðinni verður ráðhús sem rúmar alla skrifstofustarfsemi sveitarfélags- ins. Einnig verða þar ýmsar skrifstofur og þjónustufyrirtæki og er húsnæðið nánast uppselt. Enn er laust um 50 m² húsnæði á fyrstu hæð sem gefur möguleika á margþættari starfsemi. Heildar- rýmið er rúmlega 2500 m². Að fá lágvöruverðsverslun á Hvolsvöll er gamalt baráttumál íbúa héraðsins og hefur án efa mikil efnahagsleg áhrif fyrir alla. -ög Miklar framkvæmdir standa nú yfir við Austurveg á Hvolsvelli, en Krónuverslun verður opnuð þar í vor. Mynd: ÖG. B æjarráð Ölfuss samþykkti á fundi sínum nýlega að framlengja 33,3% afslátt af gatnagerðargjöldum á íbúðar- húsalóðum í Búðarhverfi í Þor- lákshöfn út maí 2018. Heildar- verð með afslætti fyrir einbýlis- húsalóð er því um 2,8 milljónir króna. Afslátturinn var í gildi allt árið 2017. -ög Afsláttur af gatnagerðargjöldum í Þorlákshöfn
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NDk5NDcz