2435
Þú færð smurþjónustu, bílaperur og rúðuþurrkur hjá Toyota Selfossi, viðurkenndum söluaðila Toyota á Íslandi. Toyota Selfossi Fossnesi 14 Selfossi Sími: 480-8000 www.toyotaselfossi.is ÍSLENSKA/SIA.IS/TOY 80180 06/16 Miðvikudagur 7. febrúar 2018 Vefútgáfa: dfs.is Síðan 1968 51. árgangur dagskrain@prentmet.is Sími 482 1944 · Eyravegi 25 · 800 Selfoss Nr: 2435 Selfossi Sími 699 1985 823 6656 Brrr... Það er farið að kólna. Nú er rétti tíminn til að yfirfara og stilla hitakerfi og snjóbræðslur fyrir veturinn. Snögg og góð þjónusta! Mikið byggt í Árborg Þ ann 2. febrúar sl. hófst svo- kölluð tilnefning í kjöri til vígslubiskups í Skálholti og stóð hún til hádegis 7. febrúar. Þeir þrír einstaklingar sem flestar tilnefningar fá verða síðan í kjöri til vígslubiskups. Kjörstjórn þjóðkirkjunnar ógilti á síðasta ári kosningu til vígslubiskups þar sem í ljós kom að val kjörmanna í a.m.k. 41 af 164 sóknum í Skálholts- umdæmi var ábótavant. Fjórir prestar sækast eftir tilnefningum, þeir sömu og við fyrra kjörið, það eru Axel Árnason Njarðvík, Eiríkur Jó- hannsson, Kristján Björnsson og Jón Helgi Þórarinsson. Kosning til vígslubiskups í Skálholti fer síðan fram dag- ana 9. mars til 21. mars næst- komandi. -ög Fjórir sækjast eftir embætti vígslu- biskups í Skálholti 112 dagurinn á sunnudag S unnudaginn 11. febrúar nk. verður 112 dagurinn haldinn hátíðlegur um allt land. Með hon- um er vakin athygli á starfi Neyð- arlínunnar og þeirra fjölmörgu viðbragðsaðila sem starfa hér á landi. Af því tilefni ætla félagar í Hjálparsveit skáta Hveragerði að vera með opið hús á sunnudaginn kl. 13:00–15:00 í hjálparsveitar- húsinu að Austurmörk 9 í Hvera- gerði. Þar gefst bæjarbúum og öðrum áhugasömum kostur á að kynna sér húsakynni, tækjabúnað og starf sveitarinnar. Klifurvegg- urinn verður opinn og kaffiveit- ingar í boði. -ög F jórar æfingar voru haldnar fyrir liðsmenn Brunavarna Árnessýslu í janúar. Áherslu- atriði mánaðarins var reykköf- un og var sjónum beint að grunnatriðum reykköfunar. Yfirleitt er reynt að keyra æfingar BÁ eins nálægt raun- veruleikanum og hægt er, en stundum er gott að fara aftur í grunninn og var það gert á þessum æfingum. Ekki var annað að heyra en að slökkviliðsmenn hefðu verið ánægðir með þessar æfingar og allir sammála um að nauðsynlegt sé að rifja upp grunnatriðin reglulega. Í febrúar munu æfingar snú- ast um reyklosun og litið verður til nýrra áherslna í þeim efnum. Slökkviliðsmenn við æfingar V egna breytinga á afhend- ingarfresti til Póstsins á Suðurlandi verður skilafrestur á efni í Dagskrána hér eftir til hádegis á sunnudögum. Skila- frestur auglýsinga er í síðasta lagi um hádegi á mánudögum. Skilafrestur á efni og auglýsingum í Dagskrána M ikil íbúafjölgun var í Sveit- arfélaginu Árborg á síðasta ári. Þann 1. janúar 2017 voru íbúar í Árborg 8.471. Þann 1. jan- úar 2018 voru þeir 8.996 og hafði því fjölgað um 525 á einu ári. Síðastliðinn mánuð hefur þeim fjölgað enn frekar og eru nú 1. febrúar 2018 orðnir 9.005 talsins. Íbúafjölgun í Árborg 2017 var 6,2%, en á landinu öllu var hún rúmlega 3%. Mikið hefur verið byggt á Selfossi á árinu og voru t.d. tæplega 350 byggingaleyfi samþykkt á árinu. -ög
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NDk5NDcz