2431
Nýjan bíl, rúðuþurrkur eða smurþjónustu? Við erum til þjónustu reiðubúin fyrir Toyota eigendur. Toyota Selfossi Fossnesi 14 Selfossi Sími: 480-8000 www.toyotaselfossi.is ÍSLENSKA/SIA.IS/TOY 80180 06/16 Miðvikudagur 10. janúar 2018 Vefútgáfa: dfs.is Síðan 1968 51. árgangur dagskrain@prentmet.is Sími 482 1944 · Eyravegi 25 · 800 Selfoss Nr: 2431 Selfossi Sími 699 1985 823 6656 Brrr... Það er farið að kólna. Nú er rétti tíminn til að yfirfara og stilla hitakerfi og snjóbræðslur fyrir veturinn. Snögg og góð þjónusta! 9.000 íbúar í Árborg A níta Líf Aradóttir, lyftinga- kona, var kjörinn íþrótta- maður Hveragerðis, en viðurkenn- ingar voru afhentar við hátíðlegt tækifæri í Listasafninu 28. des. sl. Auk Anítu voru eftirtaldið íþróttafólk tilnefnt í kjöri íþrótta- Aníta Líf íþróttamaður Hveragerðis 2017 manns Hveragerðis 2017: Dagný Lísa Davíðsdóttir körfuknatt- leikskona, Fannar Ingi Stein- grímsson golfari, Hekla Björt Birkisdóttir, fimleikakona, Krist- ján Valdimarsson blakmaður, Kristrún Rut Antonsdóttir, knatt- spyrnukona, Ragnar Ágúst Nathanaelsson, körfuknattleiks- maður og Úlfar Jón Andrésson íshokkímaður. Einnig fengu átta íþróttamenn viðurkenningu fyrir að hafa orðið Íslands- eða bikarmeistari á árinu. Verðlaunahafar og fulltrúar verðlaunahafa ásamt Anítu Líf Aradóttur, íþróttamanni Hveragerðis 2017. Í síðustu viku náði íbúatala Sveitarfélagsins Árborgar tölunni 9.000. Íbúar númer 8.999 og 9.000 voru hjónin Stefán Hafsteinn Jónsson og Bára Leifsdóttir, en þau fluttu í byrjun árs frá Reykjavík, í nýja íbúð í Gráhellu 6 á Selfossi. „Við fengum íbúð hér á Sel- fossi á mun lægra verði en geng- ur og gerist í Reykjavík. Ætli þaðmuni ekki 10–15milljónum á sambærilegri íbúð. Svo erum við líka nær bústaðnum okkar uppi á Skeiðum sem er mikill kostur,“ segir Bára. Í tilefni þess að íbúatalan í Árborg náði 9.000 mættu þau Ásta Stefánsdóttir, framkvæmda- stjóri Árborgar, og Kjartan Björns- son, bæjarfulltrúi, og færðu þeim Stefáni og Báru blómvönd. -ög Kjartan Björnsson, Stefán Hafsteinn Jónsson, Bára Leifsdóttir, níu þúsundasti íbúi Árborgar, og Ásta Stefánsdóttir. Mynd: ÖG. S tjórnendaskipti urðu hjá Tón- listarskóla Árnesinga um ára- mótin, þegar Róbert A. Darling fór á eftirlaun. Róbert var málm- blásturs- og píanókennari við skólann frá 1983 og skólastjóri frá 2000 til 2017. Við starfi skólastjóra tók Helga Sighvatsdóttir, blokkflautukenn- ari, sem kennt hefur við skólann frá 1995 og verið aðstoðarskóla- stjóri frá árinu 2000. Við starfi aðstoðarskólastjóra tók Jóhann I. Stefánsson, málm- blásturskennari, en hann hefur Nýir stjórnendur Tónlistarskóla Árnesinga kennt við skólann frá 1988 og verið deildarstjóri blásaradeildar frá 2002. Helga Sighvats- dóttir skólastjóri Tónlistarskólans. Jóhann Stefáns- son aðstoðar- skólastjóri. M ikil gróska er í byggingu nýrra fjósa og endurbóta á eldri fjósum í Rangárþingi eystra um þessar mundir. Hjónin Sigríður Björk Ólafs- dóttir og Jóhann Jensson, á Fit 1 undir Eyjafjöllum, hafa lokið við byggingu á nýju fjósi og á sama hátt hafa þau hjónin Esther Sigurpálsdóttir og Sig- urður Óli Sveinbjörnsson á Krossi í Landeyjum tekið í notk- un nýtt nútímalegt fjós. Í tilefni þessa færði Ísólfur Gylfi, Pálma- son sveitarstjóri, þessum góð- bændum viðurkenningarplatta fyrir hönd sveitarfélagsins. Nútímafjósum fjölgar í Rangárþingi eystra Sigurður Óli Sveinbjörnsson og Esther Sigurpálsdóttir bænd- ur á Krossi í Landeyjum með viðurkenningarskjöldinn. Jóhann Jensson og Sigríður Björk Ólafsdóttir, ásamt dóttur þeirra Gunnheiði og Baldri Ólafssyni afa Sigríðar.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NDk5NDcz