6.7 C
Selfoss

Laust starf matráðs í mötuneyti Fjölbrautaskóla Suðurlands

0
Laust starf matráðs í mötuneyti Fjölbrautaskóla Suðurlands
  • Fullt starf
  • Selfoss

FSu

Laust starf matráðs í mötuneyti Fjölbrautaskóla Suðurlands

Fjölbrautaskóli Suðurlands auglýsir stöðu matráðs í mötuneyti FSu lausa til umsóknar frá 1. ágúst  2023. Um er að ræða 84% starf á ársgrundvelli (í greiðsludreifingu) annars 100% starf í 9 mánuði.

Skriflegar umsóknir ásamt greinargerð um menntun, fyrri störf/starfsreynslu berist Fjölbrautaskóla Suðurlands, Tryggvagötu 25, 800 Selfossi.

Leitað er eftir skipulögðum einstaklingi með mikla þjónustulund, þolinmæði og jákvæða framkomu. Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir mikilli færni í mannlegum samskiptum.

Matráður vinnur með matreiðslumeistara skólans í þjónustu við alla viðskiptavini mötuneytis (nemendur og starfsfólk) alla daga frá 7:30 – 14:30. Boðið er upp á hafragraut kl. 8:00 og heitan hádegismat og salatbar alla daga. Annast frágang í lok dags. Matreitt er í mötuneyti FSu.

Auk þess annast hann ýmis störf sem honum eru falin af yfirmanni og falla undir starfsvið hans.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi FOSS og stofnanasamningi skólans.

Umsóknarfrestur er til 10. júní 2023.

Nánari upplýsingar um starfið veita:                                                                                                Elías Hilmarsson, elíash@fsu.is eða                                                                                                  Olga Lísa Garðarsdóttir skólameistari, olgalisa@fsu.is, sími skólans er 480 8100.

Frekari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans www.fsu.is

Skólameistari

To apply for this job please visit fsu.is.