17.8 C
Selfoss

Laus staða AÐSTOÐARSKÓLASTJÓRA

Laus staða AÐSTOÐARSKÓLASTJÓRA
  • Fullt starf
  • Anywhere

Laus staða AÐSTOÐARSKÓLASTJÓRA

í Bláskógaskóla á Laugarvatni

Bláskógaskóli á Laugarvatni er samrekinn leik- og grunnskóli ásamt frístundarstarfi. Nemendur eru á aldrinum 1 árs upp í 10.bekk og þar af eru 26 börn í leikskóladeild og 59 í grunnskóla-deild. Skólinn er Grænfána skóli og leggur áherslu á teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, fagleg vinnubrögð, einstaklingsmiðað nám, útikennslu og heilsueflingu. Uppeldisstefna skólans er ,,Uppeldi til ábyrgðar“ og leikskóladeild vinnur út frá kenningum um ,,Flæði“.

Aðstoðarskólastjóri í 100% starf:

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Dagleg stjórnun og rekstur skólans í samstarfi við skólastjóra og annað starfsfólk.
  • Er staðgengill skólastjóra.
  • Þátttaka í stefnumótun á starfsemi skólans í samræmi við skólastefnu sveitafélagsins, aðalnámskrám leikskóla, aðalnámskrám gunnskóla, lög um leikskóla og lög um grunnskóla.
  • Veita faglega forystu.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu.
  • Vilji til að gera góðan skóla betri.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfi til að nota stafsheitið kennari.
  • Kennslureynsla er skilyrði.
  • Framhaldsmenntun á sviði kennslufræða, uppeldisfræða og stjórnunar er kostur.
  • Góð samskiptahæfni, lausnamiðun, vilji til þátttöku í samstarfi og teymisvinnu.
  • Starfsreynsla sem stjórnandi kostur.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæði í störfum, skipulagshæfileikar og ríkt fumkvæði.
  • Góð íslenskukunnátta, góð færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og góð almenn tölvukunnátta.
  • Áhugi á að þróa sig í starfi.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsókn skal fylgja kynningarbréf, yfirlit yfir nám og fyrri störf og leyfisbréf fyrir starfsheitið kennari. Ráðið er til starfa frá og með 1.ágúst 2025. Starfið henta einstaklingum óháð kyni.

Umsókn með fylgigögnum skal send á netfangið irisanna@blaskogaskoli.is

Umsóknarfrestur er til 25. maí 2025. Nánari upplýsingar veitir Íris Anna Steinarrsdóttir, skólastjóri, í síma 480-3030.

To apply for this job email your details to irisanna@blaskogaskoli.is