-0.4 C
Selfoss

Viðbót við Íslandssöguna

Vinsælast

Byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri 2026 verður haldin laugardaginn 14. og sunnudaginn 15. mars 2026 kl. 11 – 18. Þar verða m.a. kynntar og sýndar byssur frá Steinþóri Matthíasi Stefánssyni (1891 – 1967) sem nýlega komu fram. Um er að ræða einstakan fund í byssu- og iðnsögu Íslands og eru byssur Steinþórs engu líkar. Sonarsonur Steinþórs og nafni Steinþór Stefánsson hefur ánafnað Veiðisafninu samtals 11 haglabyssum og eru 9 af þeim smíðaðar af Steinþóri með ýmsum lásgerðum í 16 ga. og 12 ga. sem og ein ca. 410 minkabyssa.

Steinþór Mattías Stefánsson. Mynd: Aðsend.

Einnig verða kynntar skammbyssur sem Eiríkur Haraldsson rennismiður smíðaði, mjög sjaldgæfar og af listasmíði en aðeins 5 eintök eru til. Nefndi hann þær Þrumur og eru þær í cal. 357 Mag., nákvæm eftirgerð af Colt SAA.

Félagar úr Skotíþróttafélagi Kópavogs mæta og sýna mikið úrval skotvopna. Má þar nefna riffil og fylgihluti frá Jóni Þór Sigurðssyni, Evrópumeistara í riffilskotfimi. Jóhann Vilhjálmsson byssusmiður verður einnig með kynningu á byssu- og hnífasmíði sinni.

Einnig má nefna byssur frá Jóni Björnssyni – Drífurnar frá Dalvík – og byssur frá Jóni Þorsteinssyni frá Ólafsfirði, sem einnig eru til sýnis.

Nýjar fréttir