13.9 C
Selfoss

Sandra Clausen gefur út nýja bók

Vinsælast

Sandra Clausen rithöfundur og skáld gefur út sína áttundu bók á næstu dögum, en hún ber nafnið Klúbburinn.

Áður útgefnar eru sögulegar skáldsögur í framhaldsseríunni Hjartablóð sem hlaut miklar vinsældir meðal fólks bæði á prenti og hljóðformi. Að þessu sinni skrifar hún grátbroslega kómedíu með erótísku ívafi og það í rauntíma. Sögusviðið í þetta sinn er Siglufjörður. Þar verða til áleitnar spurningar um lífið og tilveruna: „Verður nokkuð heimsendir þó húsmóðir fari í frí?“ Karen gengur á vegg með sjálfa sig, kulnun heitir það víst og hún ákveður að hrista upp í hlutunum, flytja landshorna á milli og kynnast þar norðlenskri menningu. Á Siglufirði er þó ekki einungis síldarminjasafn og skíðamenning, heldur klúbbur sem kemur Karen heldur betur á óvart. Bókinni verður dreift á næstu dögum í Pennann og Hagkaup svo fylgist með ævintýrum Karenar og því hvaða áhrif Klúbburinn mun hafa á allt hennar líf.

Nýjar fréttir