14.5 C
Selfoss

Hr. Eydís gefur út nýtt lag

Vinsælast

Hljómsveitin Hr. Eydís og söngkonan Erna Hrönn hafa gefið út lagið Heima Heimaey á Spotify og allar helstu streymisveitur.

Hljómsveitin tók gamla partýslagarann Heya Heya með The Blaze frá 1982 og færði hann yfir í íslenskt partýform, í senn óður til Vestmannaeyja og gleðinnar á Þjóðhátíð.

„Mig hefur í nokkurn tíma langað að gera þessa útgáfu, en hugmyndinni laust niður í hausinn á mér þegar ég lá í heitum potti í sumarbústað og heyrði Heya Heya með The Blaze spilað í Hamingjustund þjóðarinnar á Bylgjunni. Það var eiginlega ómögulegt að sleppa þessu, svissa bara Heya Heya Hey yfir í Heima Heimaey og málið dautt!“ segir Örlygur Smári, einn meðlima Hr. Eydís, og bætir við „…þó við verðum ekki á Þjóðhátíð í sumar létum við það ekki stoppa okkur, en við ætlum að trylla Hjarta Hafnarfjarðar og Akureyri um Versló.“

Hægt er að hlusta á lagið hér fyrir neðan.

Nýjar fréttir