Jón Daði Böðvarsson er kominn heim úr atvinnumennsku og hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Selfoss sem gildir út tímabilið 2027.
Knattspyrnudeild Selfoss greinir frá þessu.
Jón hefur verið í atvinnumennsku síðan árið 2012 þegar hann var keyptur til norska liðsins Viking FK frá Selfossi. Árið 2016 fór hann til þýska félagsins Kaiserslautern og fór þaðan til Englands. Þar spilaði hann með Wolves, Reading, Milwall, Bolton, Wrexham og nú síðast Burton Albion.
Jón Daði á að baki glæstan landsliðsferil en hann hefur leikið 64 leiki fyrir A-landslið Íslands auk fjölda leikja fyrir yngri landsliðin. Hann skoraði eftirminnilega ansi mikilvægt mark fyrir Ísland á Stade de France gegn Austurríki á EM 2016 í 2-1 sigri þegar liðið tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum mótsins.
Jón er Selfyssingur og lék upp alla yngri flokka með félaginu. Hann steig sín fyrstu skref með meistaraflokknum sumarið 2008. Hann lék síðan stórt hlutverk í liðinu tímabilið 2010 þegar liðið spilaði í fyrsta skipti í efstu deild, þá Pepsi-deild karla. Sömu sögu var að segja sumarið 2012 þegar liðið spilaði einnig í efstu deild.
Hann fær leikheimild með Selfoss þann 17. júlí þegar félagaskiptaglugginn opnar.