15.6 C
Selfoss

Vignir Vatnar sigraði í Laugarvatnshellum

Vinsælast

Sögulegt skákmót fór fram sunnudaginn 30. júní í Laugarvatnshellum. Mótið var liður í samstarfimilli Vignirvatnar.is, Caves of Laugarvatn og Fontana Spa, og vakti strax mikla athygli fyrireinstakar aðstæður og óvenjulega umgjörð. Laugarvatnshellarnir eru ekki einungis náttúrulegundur. Þeir geyma líka merka sögu, en þarna var síðast búið árið 1922.

Alls mættu 48 keppendur til leiks og myndaðist einstök stemning þegar keppendur léku sínafyrstu leiki í skugga móbergsveggja. Tefldar voru sjö umferðir með tímamörkum 3+2.

Meðal keppenda var fjölbreyttur hópur, bæði margreyndir og stigaháir skákmenn sem þekkja veltil á skáksviðinu, sem og hópur ungra og efnilegra stráka og stelpna sem stigu sín fyrstu skref ískákinni.

Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar, lék fyrsta leik mótsins fyrir nýkrýndanÍslandsmeistara Vigni Vatnar og hófst þá baráttan af fullum krafti. Þrátt fyrir ausandi rigninguhélt hellirinn keppendum og gestum tiltölulega þurrum, og stemningin minnti fremur á hátíð enhefðbundið skákmót. Fjölmargir áhorfendur komu við og fylgdust með aðstæðum.

Úrslit

Það var enginn annar en nýkrýndur Íslandsmeistari, Vignir Vatnar Stefánsson, sem sigraði mótiðmeð 6,5 vinninga af 7 mögulegum. Í öðru sæti varð Arnar Milutin Heiðarsson með 6 vinninga og í þriðja sæti Ingvar Þór Jóhannesson með 5,5 vinninga.

Flokksverðlaun

Magnús Matthíasson (5 vinningar) náði stórkostlegum árangri og hlaut verðlaun fyrir bestaárangur í flokki keppenda með minna en 2000 stig. Mikael Bjarki Heiðarsson (5 vinningar) varefstur í aldursflokki 16 ára og yngri. Í flokki óstigaskráðra sigraði Katrín Ósk Tómasdóttir (2vinningar), en hún æfir hjá Skákdeild Hauka og er aðeins 10 ára.

Að móti loknu bauð Fontana Spa öllum keppendum í slökun. Þar vakti sérstaklega athyglisundskýla með taflborðamynstri sem naut greinilega mikilla vinsælda meðal keppenda. Skákstjóri mótsins var Gunnar Björnsson, fyrrverandi formaður og stofnandi Taflfélagsins Hellis.

Nýjar fréttir